fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Íslenska þjóðin klofin í afstöðu til Bandaríkjanna – Mesti stuðningurinn frá Miðflokknum en sá minnsti frá Pírötum

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 10:45

Glímir Trump við heilabilun? Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslendingar líta heldur á Bandaríkin sem andstæðing en bandamann. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu en þar telja 40,3 prósent Bandaríkin vera andstæðing en 32,1 prósent telja Bandaríkin bandamann. 24,6 prósent voru ekki viss.

Þjóðin er því töluvert klofnari í afstöðu sinni heldur en nágrannar okkar í Danmörku en þar sögðust 60 prósent líta á Bandaríkin sem andstæðing en aðeins 17 prósent sem bandamann.

Það vekur athygli hversu mikill munur er á afstöðu íslensku þjóðarinnar eftir kyni og stjórnmálaskoðunum. 49,1 prósent kvenna líta á Bandaríkin sem andstæðing en aðeins 32,1 prósent karla. Bandaríkin eru vinsælust meðal hægrimanna. Mikill meirihluti Miðflokks lítur á Bandaríkin sem bandamann, eða 68,7 prósent, og það sama á við um 57,6 prósent Sjálfstæðismanna. Framsóknarmenn eru klofnir, þar segja 36,3 prósent Bandaríkin vera andstæðing en 32,8 prósent segja Bandaríkin bandamann. Enginn Pírati lítur á Bandaríkin sem bandamann.

Unga fólkið lítur síður á Bandaríkin sem bandamann en eldri kynslóðirnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump