fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Einar bendir á ótrúlegar hitatölur í janúar – Rúmlega hundrað ára met slegið

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 14:24

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Bliku.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Bliku bendir á fáheyrðar hitatölur í janúar. Það er að meðalhitinn í mánuðinum var hærri í Nuuk á Grænlandi en í Danmörku.

Í færslu á samfélagsmiðlum greinir Einar frá því að meðalhitinn í Nuuk í janúar hafi verið aðeins 0,1 gráðu undir frostmarki.

„Aldrei gerst áður í mælingasögunni að janúarhiti endi ofan frostmarks í Nuuk. Nýtt hitamet og það eldra var frá 1917. Þetta er nærri 8 stigum ofan meðallags janúar,“ segir hann. „Norðar, í Ilullisat voru frávikin enn stærri og hiti þar heilum 11 stigum yfir meðallagi. 1,3 stigi yfir eldra meti frá 1929.“

Hins vegar hafi danska veðurstofan, DMI, reiknað meðalhitann 0,6 gráðum undir frostmarki í Danmörku. Í Kaupmannahöfn var sami meðalhiti og í Nuuk.

„Þar með var kaldara í kóngsins Köben, en í Nuuk! Það held ég að sé fáheyrt. Þó ekki útilokað að það hafi gerst einhverntímann áður, s.s. á stríðsárunum, þegar voru annálaðir vetrarkuldar í Danmörku,“ segir Einar.

Myndin sýnir einkennandi útslag í bylgjum í skotvindinum í janúar sl.- svokallaða Rossby-bylgju. Mynd/DMI
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”