fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

„Á bak við hverja sögu er, eða var, fólk. Alvöru fólk sem á sér drauma og von um betri framtíð“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 19:00

Ása Berglind Hjálmarsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona Samfylkingarinnar segir samfélagið ítrekað bregðast þeim sem standa höllum fæti í lífinu, börnum jafnt sem ungmennum og fullorðnum.Segir hún samhengi milli allra þáttta og ef brugðist sé við vanda barna sé líklegt að vandinn vaxi og verði stærri eftir því sem þau eldast.

„Sögurnar birtast okkur, nú sem aldrei fyrr og á bakvið hverja sögu er, eða var, fólk. Alvöru fólk sem á sér drauma og von um betri framtíð.“

Í ræðu sinni á Alþingi í dag og í fréttabréfi sínu á Substack segir Ása Berglind að það sé sama hvert litið er, þegar kemur að því hvernig við sem samfélag hugsum um þau sem höllum fæti standa í lífinu.

„Við höfum ekki verið að standa okkur vel, við erum ekki að standa okkur nógu vel. Við erum að tala um barnaverndarúrræði fyrir börn í mjög viðkvæmri stöðu. Við erum að tala um meðferðarúrræði fyrir ungt fólk. Við erum að tala um fangelsi landsins.“ 

Ása Berglind segir af mörgu af taka en beinir sjónum sínum að nýtúkominni eftirfylgniskýrslu frá Ríkisendurskoðenda um fangelsismál sem birt var mánudaginn 16. febrúar.

„Tilgangur með eftirfylgninni er að kanna hvort og þá hvernig brugðist hefur verið við ábendingum og tillögum Ríkisendurskoðunar í skýrslu sem kom út í nóvember 2023. Í eftirfylgni kemur í ljós að af níu ábendingum er aðeins ein þeirra komin er í lag, hún snýr að menntun fangavarða.“ 

Segir hún ljóst að núverandi húsnæði á Litla Hrauni er algjörlega óboðlegt bæði föngum og starfsfólki og hraða þarf undirbúning nýs fangelsis að Stóra Hrauni. Einnig segir hún að meðal þess sem þurfi að gera sé að að móta heildstæða endurhæfingarstefnu, bæta stöðu kvenna í fangelsum og tryggja heilbrigðisþjónustu og menntun fanga.

„Það er ljóst að samhengi er á milli allra þessara þátta. Ef við bregðumst börnum í vanda á meðan þau eru ung þá eru meiri líkur á að vandi þeirra vaxi og verði orðinn mjög stór á unglingsárum. Ef við bregðumst þeim líka þá, er því miður mikil hætta á því að þau endi í fangelsum landsins. Ætlum við að halda áfram að bregðast þeim þar?“ 

Ása Berglind segir vandann ekki nýtilkominn, heldur sé um að ræða vanda sem fengið hefur að byggjast upp árum og áratugum saman og ljóst að hin margumtalaða innviðaskuld er líka risastór í fangelsismálum og full þörf á að fara yfir stöðu mála. Í haust hafi hún óskað eftir sérstakri umræðu um fangelsismál og vonast hún til að umræðan fari á dagskrá þingsins við fyrsta tækifæri.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“