

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Svönu. Þar segir að henni hafi boðist mjög krefjandi og spennandi starf rétt áður en prófkjörið hófst sem forstjóri Reykjalundar.
„Ég tel að það sé farsælast að ég dragi mig úr öllu pólitísku starfi samhliða því stóra verkefni. Ég hyggst þó sitja út þetta kjörtímabil rétt eins og ég var kjörin til. Ég hef upplýst bæjarstjóra Seltjarnarness og formann kjörnefndar Sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi um þessa ákvörðun mína.“