fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Allt á suðupunkti vegna lista yfir fræga fólkið í Epstein-skjölunum – Bondi sökuð um að slá ryki í augu fólks

Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. febrúar 2026 08:00

Pam Bondi. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allt er á suðupunkti í Bandaríkjunum eftir að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti lista yfir 305 þekkta einstaklinga, skemmtikrafta og stjórnmálamenn sem birtust í Epstein-skjölunum. Reiðin beinist þó ekki að einstaklingunum á listanum heldur að dómsmálaráðherranum Pam Bondi sem sökuð er um, af ýmsum Demókrötum og Repúblikunum, að slá ryki í augun á fólki með birtingunni.

Á listanum mátti sjá kunnuleg nöfn í umræðunni um skjölin  eins og Ghislaine Maxwell, Donald Trump, Bill Clinton og Bill Gates en einnig nöfn Tony Blair, Robert de Niro, Kim Kardashian og Mark Zuckerberg.

Vandinn er sá að listinn tiltekur ekki í hvaða samhengi fólk birtist í skjölunum. Sumir einstaklingar eru í virkum samskiptum við níðinginn alræmda á meðan aðeins er minnst á aðra í einhverjum tölvupóstum.

Til að mynda má finna nafn tónlistarkonunnar Janis Joplin á listanum en hún lést þegar Epstein var 17 ára táningur.

Segir öll skjöl hafa verið birt

Þá lét dómsmálaráðuneytið frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrt var að nú hefðu öll Epstein-skjölin verið birt í samræmi við löggjöf þess efnis sem samþykkt var í nóvember í fyrra.

Fjölmargir eru gríðarlega ósáttir við þá fullyrðingu enda hafi fjölmargt verið ritskoðað í skjölunum fyrir birtingu og margt af því andstætt lögunum áðurnefndu.

Dómsmálaráðherrann Bondi hefur fullyrt að allt það sem hafi verið falið sé til þess vernda fórnarlömb en aðrir saka hana um að vera að hylma yfir með meintum samverkamönnum Epstein.

Einn þeirra er Ro Khanna, þingmaður Demókrata, sem hefur fengið að skoða hluta skjalanna án ritskoðunar en þar fann hann allnokkur dæmi þess að strokað hefði verið yfir nöfn sem ekki hefði átt að fela. Hann hefur krafist þess að skjölin verði birt í heild sinni og aðeins nöfn fórnarlamba verði fjarlægð.

„Það að birta nafn Janis Joplin á listanum, meðfram nafni Larry Nassar, sem var sendur í fangelsi fyrir að misnota hundruði ungra kvenna og fyrir barnaklám, en ekki með neinum útskýringum um hvers vegna nöfn þeirra komu fyrir er gjörsamlega fráleitt, “ sagði Khanna. Sagði hann að birting listans væri eingöngu til þess að reyna að slá ryki í augu fólks.

Sleppti börnum Trump en birti börn Biden

Repúblikaninn Marjory-Taylor Greene, sem var eitt sinn dyggasti stuðningsmaður Donald Trump þar til hún sneri við honum bakinu, var líka allt annað en sátt. Nafn hennar mátti finna á áðurnefndum 305 manna lista en skjalið, þar sem á hana var minnst, hafði verið afmáð að öllu leyti.
„Ef þið ætlið að setja nafnið mitt á þennan falsaða Epstein lista en felið svo allar 31 síðurnar þar sem nafn mitt kemur fram? Hvað hafið þið að fela?“, spurði Taylor-Greene.
Þá var einnig bent á að nöfn barna Joe Biden, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, birtust á listanum, Ashley og Hunter, en þar er ekki að finna börn Donald Trump þrátt fyrir að sannarlega er minnst á þau Tiffany, Donald yngri, Eric og Barron í skjölunum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart