fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Gefur garn og glæðir notaðar flíkur nýju lífi

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 13. febrúar 2026 15:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hönnuðurinn Hinda Mandell heldur spennandi smiðju í hekli á Borgarbókasafninu Gerðubergi laugardaginn 14. febrúar.
Komið með notaðar flíkur, hnepptar skyrtur eða stuttermaboli úr góðri bómull eða þéttu efni, sem vantar smá ást og alúð, á Borgarbókasafnið Gerðubergi núna á laugardaginn 14. febrúar, sjálfan Valentínusardag, kl. 14:00. Hönnuðurinn og höfundurinn Hinda Mandell mætir alla leið frá New York og verður með skemmtilega og gagnlega smiðju á bókasafninu þar sem hún kennir þátttakendum að hekla fallega kanta á notaðar flíkur.
Gott er að kunna smávegis í hekli til að fá sem mest út úr smiðjunni en Hinda mun aðstoða þátttakendur við komast í gang með verkefnin sín. Og ekki nóg með það heldur gefur hún viðstöddum garn sem hefur verið handlitað í hverfinu hennar í New York.
Heitt verður á könnunni og kærleikur svífur yfir vötnum á safninu. Ókeypis verður í smiðjuna. Öll hjartanlega velkomin.
Um Hindu Mandell
Hinda Mandell er rithöfundur og prófessor við School of Communication við RIT – Rochester Institute of Technology í New York. Hún ritstýrði meðal annars bókinni Global Craftivism since the Pussyhats: Handcraft Responses to Violence, War, Illness and Isolation, sem þykir sannkölluð veisla fyrir áhugafólk um handverk.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”