fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 09:30

Elliði Vignisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfus hrósar Ara Edwald, sem verður leiðtogi Miðflokksins í borgarstjórnarkosningum í vor, fyrir að mæta í viðtöl og svara spurningum af hvaða toga sem er. Spyr Elliði jafnframt hvað aðrir stjórnmálamenn sem skorast undan viðtölum við suma fjölmiðla hafi að fela.

„Það er orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað. Ekki kemur til greina annað en það sem þeim langar í og helst með þjóni sem kinkar kolli og brosir. Jafnvel leiðtogar ríkisstjórnar sýna þá lítilsvirðingu að hafna ákveðnum fjölmiðlum og fjölmiðlafólki um viðtal. Harðast hefur kveðið að þegar kemur að ótta ríkisstjórnarflokkanna við Stefán Einar Stefánsson í Spursmálum.“ 

Segir Elliði í pistli sínum að á mánudag hafi stigið fram frambjóðandi sem hafi farið aðra leið og vísar hann þar til Ara og segir hann hafa mætt óhikað í viðtöl og svarað spurningum.

„Gilti þar einu hvort um var að ræða spurningar sem sneru að stjórnmálum eða málum sem gengu nærri persónu hans. Allir fjölmiðlar sátu við sama borð og höfðu sama aðgengi.  Ari óttaðist hvorki RÚV, Sýn, Morgunblaðið eða hlaðvarpsþætti. Hann svaraði spurningum af hreinskilni og óttaleysi. Það er virðingarvert.

Jürgen Habermas, einn áhrifamesti samtímaheimspekingur um lýðræði og opinbera umræðu, myndi fagna slíku. Hann hefur bent á að lýðræði lifir ekki á kosningadegi einum saman heldur í stöðugri, opinberri rökræðu. Vald sem velur sér aðeins mjúkar spurningar er að hans mati vald sem hefur slitið sig frá réttmæti. Það vill stjórna ímynd, ekki svara. Slíkt vald er í besta falli aumt, í versta falli skaðlegt.“

Elliði bendir á að fjölmiðlar eiga ekki að vera klappstýrur, þeir eiga að vera beittir.

„Þegar stjórnmálamaður forðast gagnrýnin viðtöl er hann ekki að vernda sig, hann er að rýra umræðuna, veikja aðhaldið og sýna kjósendum fyrirlitningu. Veita þeim falsmynd á borð við gervigreindarmyndina sem fylgir þessari grein. Draga upp veruleika sem aldrei hefur gerst.

Þetta snýst ekki um dónaskap eða vanvirðingu. Þetta snýst um það hvort við viljum stjórnmál sem þola mótbárur. Lýðræði án ágreinings er ekki friðsælt; það er dautt. Og ef vald þolir ekki spurningar, hver er þá sannleikurinn. Er hægt að treysta slíku stjórnmálafólki?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“