fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi – Andrés Bertelsen í oddvitasætinu

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 13:30

Andrés Bertelsen

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýtt framboð, Betri sveit – fyrir okkur öll, býður fram lista í komandi sveitarstjórnarkosningum í Grímsnes- og Grafningshreppi. Greint er frá þessu á vef Dagskrárinnar.

Betri sveit hefur það að markmiði að stjórnsýsla sveitarfélagsins verið opnari, stuðlað verði að sanngjörnum ákvörðunum sem byggja ætíð á hagsmunum samfélagsins í heild. Framboðið leggur áherslu á skýrt utanumhald um framvindu verkefna og þeirra málefna sem sveitarfélagið stendur að eða stendur frammi fyrir.

Einnig segir að framboðið vilji auka samráð og að vilji íbúa sé kannaður með ráðgefandi íbúakosningu. Skal markmiðið ætíð vera að efla með markvissum hætti lýðræðisleg vinnubrögð í sveitarfélaginu, verja fé til framkvæmda eftir forgangsröðun íbúanna sjálfra og með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.

Betri sveit vill móta framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið sem verði leiðarljós að ákvarðanatöku kjörinna fulltrúa.

Andrés í oddvitasæti

Andrés Bertelsen hefur verið kosinn oddviti listans. Aðrir frambjóðendur verða kynntir á næstu vikum ásamt helstu stefnumálum framboðsins. Andrés Bertelsen er fæddur og uppalinn á Silfrastöðum í Skagafirði. Hann útskrifaðist með skipstjórnargráðu frá Tækniskólanum árið 2014. Starfsferill Andrésar spannar alþjóðlega markaðssetningu, fjölmiðlun og hönnun flókinna tæknikerfa. Hann býr að reynslu úr nýsköpunarfyrirtækjum, sem og rótgrónum fyrirtækjum. Andrés starfar nú við hugbúnaðarþróun í alþjóðlegu nýsköpunarverkefni.

Andrés býr ásamt sambýliskonu sinni í Grímsnes- og Grafningshreppi. Tvö eldri börn þeirra eru uppkomin en tvö þau yngri stunda nám við Kerhólsskóla.

Sjá einnig Facebook-síðu framboðsins, hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”