fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fær á baukinn fyrir að kvarta undan verðlagi á Íslandi

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjörugar umræður hafa skapast í Facebook-hópnum Iceland – Tips for travelers eftir að sænskur ferðamaður kvartaði undan verðlagi hér á landi.

„Reynsla mín af því að ferðast til Íslands var fáránleg. Allt var svo dýrt að maður gæti haldið að maður þyrfti jafnvel að borga fyrir að anda,“ sagði viðkomandi sem kvartaði sérstaklega undan því að fá bílastæðasektir og svo undan óhóflegum rukkunum frá bílaleigu sem hann átti í viðskiptum við.

„Síðan gefa þeir manni bílastæðasektir á netinu án þess að láta mann vita. Ég fékk tvær, samtals 88 evrur,” sagði maðurinn en sú upphæð jafngildir tæpum 13 þúsund krónum.

Endaði maðurinn svo færsluna á að segja að hann muni fara til Svíþjóðar og njóta þess að borða pizzu sem kostar 1.700 krónur á meðan við Íslendingar þurfum að borga yfir 3.000 krónur fyrir pizzuna.

Eins og segir í fyrirsögninni fékk maðurinn ekki mikla samúð í athugasemdum við færsluna.

„Þú hefur augljóslega ekki kynnt þér málin áður en þú ferðaðist til landsins. Það virðist líka eins og þú kunnir ekki að lesa. Öll bílastæði segja þér að borga. Og þú last heldur ekki bílaleigusamninginn þinn. Þetta er allt 100% á þér,“ sagði einn.

„Áður en maður fer í ferðalag þarf maður að skipuleggja sig fyrirfram. Hluti af því er að kynna sér málin, og ef þú gerir það sérðu að Ísland er dýrt. Þú ferð ekki til lands sem er dýrt og verður svo hissa þegar hlutirnir ERU í raun dýrir. Ég ferðaðist með aðeins 1200 Bandaríkjadali til að eyða og eyddi bara 800. Ég vann heimavinnuna mína. Fallegur staður og hverrar krónu virði,“ segir annar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“