fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Iceland Foods opnar „verslun innan verslunar“ í Nettó í Mjódd 

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 12:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forstjóri Iceland Foods í Bretlandi, Tarsem Dhaliwal, kynnti svokallaða „verslun innan verslunar“ í Nettó í Mjódd í síðustu viku. Með opnuninni kynnir Iceland Foods sitt fyrsta afmarkaða verslunarsvæði innan Nettó, þar sem nú er hægt að nálgast þekkt vörumerki á borð við TGI Fridays, MyProtein og Slimming World sem notið hafa mikilla vinsælda í Bretlandi og víðar. 

Iceland Foods var stofnað árið 1970 og er í dag ein þekktasta verslanakeðja Bretlands, auk þess að vera á meðal þekktustu vörumerkja landsins. Fyrirtækið starfar í um 60 löndum og rekur tæplega 1000 verslanir í Bretlandi, eins og segir í tilkynningu.

Starfsfólk Nettó ásamt Tarsem Dhaliwal, forstjóra Iceland Foods, sem er fyrir miðju og Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga, sem er fyrir aftan hann.   Mynd: Ragnheiður Arngrímsdóttir.

„Það er okkur ánægja að geta boðið viðskiptavinum Nettó upp á vinsælu vörulínurnar okkar með þessum hætti. Þessar vörur eru vinsælar og hafa notið mikillar velgengni í Bretlandi,“ segir Tarsem Dhaliwal, forstjóri Iceland Foods.

Formleg opnun Iceland kælanna fór fram í Nettó í Mjódd 3. febrúar síðastliðinn og er  fyrsta skrefið í samstarfi Iceland Food og Nettó en „verslun innan verslunar“  verður innleidd í fleiri Nettó verslanir á þessu ári.

„Það var ánægjulegt að taka á móti Tarsem sem kom til landsins af þessu tilefni og taka þátt í að opna formlega þessa nýjung hjá Nettó. Samstarfið gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum okkar upp á gæða frystivöru á hagkvæmu verði. Verslanir Nettó  hafa verið í miklu umbreytingarferli síðustu mánuði og virkilega gaman að bæta þessari nýjung við“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Samkaupa og Dranga.

Eftir endurbætur býður verslun Nettó í Mjódd  upp á helmingi stærri heilsudeild og hefur verið  endurskipulögð með það í huga að bæta upplifun og einfalda viðskiptavinum verslunarferðirnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”