fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Yfir 300 skjálftar mælst: „Það er sennilega einhver kvika að safnast þarna saman“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 9. febrúar 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfir 300 jarðskjálftar hafa mælst í jarðskjálftahrinunni við Eldey sem hófst um hádegisbil á laugardag. Í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands kemur fram að hrinan standi enn yfir þó ákafinn hafi aðeins minnkað frá því í gær.

„Stærsti skjálftinn hingað til mældist 3,4 að stærð kl 16:50 í gær, en Veðurstofu hafa ekki borist tilkynningar um að hann hafi fundist í byggð,“ segir í tilkynningunni.

Í Morgunblaðinu í dag er rætt við eldfjallafræðingana Ármann Höskuldsson og Þorvald Þórðarson sem sem útiloka ekki að eldgos sé yfirvofandi. Staðsetningin geri það þó að verkum að ekki sé víst að myndi sjást.

„Ef það verður í dýpinu sjáum við það aldrei en sjórinn gæti hitnað eitthvað. En ef það verður uppi á Eldeyjarhryggnum kemur það náttúrulega í gegn og við gætum séð einhverja smávegis öskumekki,“ segir Ármann við Morgunblaðið.

Hann bendir á að það gjósi við Eldey að jafnaði einu sinni til tvisvar á öld en í ár verða hundrað ár liðin frá síðasta gosi á svæðinu.

„Þessar hrinur eru að sýna okkur að þetta svæði er virkt og að það er sennilega einhver kvika að safnast þarna saman, en það er bara spurning hvort hún komist upp á yfirborðið,“ segir Þorvaldur.

Jarðskjálftahrinur við Eldey eru fremur algengar, þær eru alla jafnan vegna flekahreyfinga en aukin spenna á Reykjanesskaga umbrota þar síðan 2020 hafa einnig aukið tíðni jarðskjálftahrina á svæðinu. Síðast var hrina við Eldey 3. desember 2025.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“