
Mjög alvarleg líkamsárás átti sér stað á þorrablóti HK, í Kórnum, föstudagskvöldið 30. janúar.
Samkvæmt heimildum DV úr tveimur áttum gekk þar einn maður hrottalega í skrokk á öðrum, sem lá þungt haldinn á gjörgæsludeild eftir árásina. Er hann sagður hafa borið varanlegan skaða af árásinni. Samkvæmt sömu heimildum er árásarmaðurinn þekkt nafn úr undirheimum Reykjavíkur, íslenskur. Mennirnir tveir eru kunnugir en orsakir árásarinnar eru óstaðfestar.
DV fékk þessar upplýsingar í síðustu viku og hafði þá samband við Sveinbjörn Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóra HK. Hann gat staðfest að atvik hefði átti sér stað á þorrablótinu sem leiddi til þess að lögregla var kölluð á vettvang. Hins vegar hafi hvorki hann né starfsfólk þorrablótsins orðið vitni að því sem gerðist. Vísaði hann til lögreglu um frekari upplýsingar.
Í dag, mánudaginn 9. febrúar, náði DV síðan sambandi við Jónatan Guðnason, aðalvarðstjóra á lögreglustöð 3, hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en þar er sinnt verkefnum í Kópavogi og Breiðholti. Jónatan gat staðfest að atvik frá þorrablótinu hefði leitt til afskipta lögreglu og að málið væri komið á borð rannsóknarsviðs, en slíkt er jafnan vísbending um að mál sé alvarlegt eða viðamikið.
DV náði einnig sambandi við rannsóknarsvið lögreglunnar. Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn, staðfesti að málið væri til rannsóknar hjá deildinni. Meintur árásarmaður væri þó ekki í gæsluvarðhaldi. „Ekki að svo stöddu,“ sagði hún.
Hún upplýsti hins vegar að maðurinn hefði verið í haldi lögreglu. Hún sagðist ekki hafa staðfestar upplýsingar um líðan brotaþola en taldi að hann væri ekki í lífshættu. „En viðkomandi var töluvert slasaður þegar hann komst undir læknishendur,“ segir hún.
Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið að sinni. „Við erum bara að rannsaka þetta mál.“