fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna slyssins í gær

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. febrúar 2026 12:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kyrrðarstund verður haldin í Árbæjarkirkju klukkan 16 í dag vegna umferðarslyssins sem varð á Miklubraut í gærkvöldi.

„Í ljósi sorglegs slyss sem varð í gær verður haldin Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju í dag. Séra Þór Hauksson leiðir stundina og Guðmundur organisti leikur undir. Gestum gefst kostur á að tendra kerti í friði og hljóðri minningu. Kyrrðarstundin hefst kl. 16:00 og eru allir hjartanlega velkomnir,” segir í færslu sem birtist á Facebook-síðu Árbæjarkirkju.

Tilkynnt var um slysið klukkan 23:18 í gærkvöldi en í tilkynningu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér í morgun kom fram að um „mjög alvarlegt“ slys hefði verið að ræða.

Lögregla óskaði í morgun eftir vitnum að slysinu en bifreiðin sem um ræddi staðnæmdist við stólpa Vegagerðarinnar, á móts við hús Hjálpræðishersins, eftir að hafa verið ekið austur Miklubraut.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”