fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hanna útskýrir hátt verðlag í Fríhöfninni: „Við getum ekki alltaf verið ódýrust“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. febrúar 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hanna Sigríður Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri vörusviðs og markaðsmála hjá Ísland Duty Free, segir að margt í rekstrarumhverfi fríhafnarinnar útskýri hvers vegna sælgæti sé oft á tíðum dýrara þar en í lágvöruverðsverslunum.

Hanna segir þetta í samtali við Morgunblaðið í dag en tilefnið er verðkönnun sem birtist á síðum blaðsins á mánudag. Þar kom fram að algengar sælgætistegundir séu í mörgum tilfellum dýrari í fríhöfninni en í dæmigerðum verslunum hér á landi.

Í könnuninni sem Morgunblaðið birti – og takmarkaðist við átta tegundir sælgætis – mátti til dæmis sjá að 100 gramma poki af rauðum Ópal kostar 490 krónur í Fríhöfninni en 379 krónur í Bónus, 50 gramma Þristur kostar 190 krónur í Fríhöfninni en 154 krónur í Bónus og 100 gramma súkkulaðistykki frá Freyju kostar 590 krónur í Fríhöfninni en 489 krónur í Bónus.

Sjá einnig: Keypti Smarties í Fríhöfninni en sá svo hvað það kostaði í Krónunni

Til að gæta sanngirni kom einnig fram að í sumum tilfellum er verð á sælgæti lægra í Fríhöfninni, en hafa ber í huga að vörur þar bera engan virðisaukaskatt. Alls voru 5 vörur af 8 ódýrari í Bónus.

Hanna segir við Morgunblaðið í dag að virðisaukaskattur á sælgæti sé 11% og vægi hans því ekki mjög mikið.

„Rekstur í flugstöðinni er líka ólíkur öðrum verslunarrekstri og við getum ekki alltaf verið ódýrust,“ segir hún við Morgunblaðið í dag. Þá nefnir hún að opið sé allan sólarhringinn og margir starfsmenn á vakt hverju sinni. Þá bendir hún á að leigan og reksturinn sé dýr.

Nánar er fjallað um þetta í Morgunblaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum