fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Nýr vefur bætir upplýsingar um úrgangsmagn og flokkun

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 26. janúar 2026 15:09

Valgerður Sigrún Vigfúsardóttir, forstöðumaður viðskiptadeildar hjá Terra umhverfisþjónustu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Terra umhverfisþjónusta hefur sett í loftið nýjan þjónustuvef. Valgerður Sigrúnar Vigfúsardóttir, forstöðumaður viðskiptadeildar hjá Terra umhverfisþjónustu, segir að með nýja vefnum sé ætlunin að bæta upplifun viðskiptavina og gera þeim kleift að nálgast upplýsingar þegar þeim hentar. 

„Nýi þjónustuvefurinn gerir viðskiptavinum kleift að panta losun á ílátum óháð opnunartíma þjónustuvers og sýnir allar helstu upplýsingar sem þarf varðandi úrgangsmál. Stjórnendur hafa aðgang að ítarlegum flokkunarupplýsingum, þar á meðal úrgangsmagn niður á úrgangstegundir eftir þjónustustað og heildarúrgang fyrirtækisins sundurliðaðan eftir tegund. Upplýsingarnar birtast bæði í kílóum og sem hlutfall af heildarmagni. Þetta er lykilatriði fyrir fyrirtæki sem vilja fylgjast með eigin umhverfisáhrifum og vinna að grænu bókhaldsuppgjöri. Á þjónustuvefnum geta notendur séð yfirlit yfir öll ílát, pantað losanir og skoðað þjónustudagatal sem sýnir síðustu og næstu losun íláta, sem auðveldar skipulag og yfirsýn,“  segir Valgerður.

Aðgangur að vefnum er einstaklingsbundinn hvort sem viðkomandi er stjórnandi eða almennur notandi. Innskráning fer fram með rafrænum skilríkjum.

„Við hvetjum alla viðskiptavini til að kynna sér nýja þjónustuvefinn og nýta sér þá virkni sem hann býður upp á. Þetta er stórt skref í átt að betri þjónustu, auknu gagnsæi og meiri stjórn á eigin úrgangsmálum. Þjónustuvefurinn er mikilvægur liður í okkar stefnu um ánægju viðskiptavina og sjálfbærni. Með því að veita nákvæmar upplýsingar um úrgangsmagn og flokkun hjálpum við fyrirtækjum að setja sér markmið og draga úr sóun. Þetta styður við grænt bókhald og umhverfisvæna ákvarðanatöku. Framtíðarsýn Terra er að vera leiðandi í nýsköpun og sjálfbærum lausnum í úrgangsstjórnun og þjónustuvefurinn er lykiltæki á þeirri vegferð,“ segir Valgerður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar