fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Dekkjaverkstæði ákært fyrir 100 milljóna skattsvik

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 19. janúar 2026 18:00

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært Muhammad Younas, eiganda dekkjaverkstæðisins Iceland tire, Rauðhellu 4, Hafnarfirði, og dekkjaverkstæðið sjálft, fyrir meiriháttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum.

Annars vegar eru Muhammad og Iceland tire ákærð fyrir að hafa vantalið rekstrartekjur fyrirtækisins fyrir rekstrarárin 2018 til 2021 um samtals rétt rúmlega 34 milljónir króna.

Hins vegar eru aðilarnir sakaðir um að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum með því að vanframtelja útskatt frá árunum 2017 og fram til 2022. Vangreiddur virðisaukaskattur vegna þessarar háttsemi er tæplega 65 milljónir króna.

Ennfremur segir í þriðja ákærulið:

„Með því að rangfæra bókhald í rekstri Iceland tire ehf. með því að gefa ekki út sölureikninga vegna hluta af sölu félagsins og gefa út sölureikninga án þess að um eiginlega sölu hafi verið að ræða, sem leiddi til þess að bókhald félagsins gaf ranga mynd af viðskiptum og vantaldi tekjur félagsins, svo bókhaldið uppfyllti ekki kröfur laga nr. 145/1994 um bókhald á tímabilinu september rekstrarárið 2017 til og með desember rekstrarárið 2022.“

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 28. janúar næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”