fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Vígasveitir ICE áreita og handtaka innfædda Bandaríkjamenn

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 18. janúar 2026 14:30

Meira en 1 prósent Bandaríkjamanna eru innfæddir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ættbálkahöfðingjar innfæddra Bandaríkjamanna hafa greint frá því að fólk þeirra hafi orðið fyrir árásum frá ICE sveitum Donald Trump. Meðal annars hafa innfæddir Bandaríkjamenn verið handteknir eingöngu vegna húðlitar og nafns.

Dagblaðið Washington Post greinir frá þessu.

Hinar grímuklæddu vígasveitir ICE hafa valdið miklum usla síðan ríkisstjórn Donald Trump gaf þeim óheft leyfi til þess að veitast að innflytjendum í landinu. Einnig hafa þeir veist að mörgu öðru fólki, meðal annars hinni 37 ára gömlu Renee Good sem var skotin í andlitið fyrir það eitt að reyna að flýja hinar grímuklæddu sveitir.

Nú hafa ættbálkahöfðingjar innfæddra í Bandaríkjunum greint frá því að þeirra fólk hafi orðið fyrir barðinu á ICE. Hafa innfæddir Bandaríkjamenn verið stöðvaðir, yfirheyrðir, áreittir og handteknir, eingöngu vegna húðlitar og nafns.

Meðal þeirra sem hafa verið handteknir eru Jose Roberto Ramirez, tvítugur maður af ættbálkinum Ojibwe í norðurhluta Minnesota. Honum var haldið í alls tíu klukkutíma af ICE sveitunum án tilefnis. Þegar honum var loksins sleppt var hann með áverka á baki og hálsi eftir barsmíðar.

Margir fleiri hafa orðið fyrir barðinu á ICE, meðal annars úr hinum fjölmenna Sioux ættbálki sem búa í Miðvesturríkjunum og á hinum Miklu sléttum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”