fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fjórir skattsvikarar fá háar sektir en sleppa við atvinnurekstrarbann

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 12:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur Íslands hefur synjað Lútheri Ólasyni um áfrýjunarleyfi vegna dóms sem féll gegn honum í Landsrétti undir lok síðasta árs.

Þar hlaut Lúther dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og greiðslu hárrar sektar fyrir meiriháttar skattalagabrot í rekstri byggingafélaga ásamt þremur samverkamönnum sínum, þeim Hermanni Ragnarssyni, Armando Luis Rodriguez og Theódór Heiðari Þorleifssyni.

Sluppu við atvinnurekstrarbann

Athygli vekur að Héraðssaksóknari fór fram á að mennirnir yrðu dæmdir í atvinnurekstrarbann vegna málsins en dómarar málsins, á tveimur dómsstigum, féllust ekki á þá kröfu. Meðal annars vegna þess að hluti brotanna átti sér stað áður en ákvæðið um atvinnurekstrarbann, sem ætlað er að stemma stigu við kennitöluflakki og notkunar á félögum með takmarkaða ábyrgð í vafasömum tilgang, var lögfest árið 2019.

Í dómi Landsréttar kemur fram að Lúther, sem neitað alfarið sök, hlaut 12 mánaða skilorðsbundinn dóm og var gert að greiða 51 milljónir króna í sekt, sem var lækkun um fjórar milljónir úr héraði, fyrir að hafasem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Stapafells ehf., sem nú hefur verið úrskurðað gjaldþrota, staðið skil á efnislega röngum skattframtölum félagsins gjaldárin 2017 til og með 2019 vegna rekstraráranna 2016 til og með 2018. Meðal annars snerust brot Lúthers um að hafa fært til gjalda tilhæfulausa reikninga frá félögum sem samverkamenn hans stóðu að, meðal annars félaginu Hornbjargi ehf.

Hermann hlaut sjö mánaða skilorðsbundinn dóm og 15 milljón króna sekt fyrir svipaðar sakir. Hann var dæmdur fyrir að hafa staðið skil á efnislega röngu skattframtali, sem stjórnarformaður og framkvæmdastjóri félagsins HR Bygg ehf, áður Parket og smíðar ehf, gjaldárið 2019 vegna rekstrarársins 2018 með því að færa til gjalda í skattskilum þess kostnað á grundvelli rangra og tilhæfulausra reikninga frá öðrum félögum, meðal annars áðurnefndu Hornbjargi ehf.

Annar neitaði sök en hinn játaði

Armando og Theódór, sem eiga sakaferla að baki, voru síðan sakfelldir fyrir meiriháttar brot á skattalögum og lögum um bókhald vegna að komu sína að rekstri félagsins Hornbjargs ehf. Armando og Theódór hlutu báðir 12 mánaða fangelsisdóm, þar af níu þeirra skilorðsbunda, og var þeim gert að greiða 50 milljón króna sekt hvor.
Theódór var stjórnarmaður og framkvæmdastjóri félagsins og Armando varastjórnarmaður og daglegur stjórnandi þess. Stóðu þeir ekki skil á virðisaukaskattsskýrslum félagsins vegna neinna uppgjörstímabila rekstrarárin 2017 og 2018 og svo og með því að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum félagsins vegna uppgjörstímabila rekstrarárið 2018. Jafnframt með því að hafa ekki staðið ríkissjóði skil, í samræmi við lög um virðisaukaskatt, á virðisaukaskatti. Armando neitaði alfarið sök í málinu en Theódór gekkst við brotunum og gaf þá skýringu að hann hefði verið í mikilli óreglu á þessum árum.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”