

Skaupið í ár var það besta í að minnsta kosti 14 ár samkvæmt skoðanakönnum Maskínu, en 90 prósent svarenda fannst Skaupið gott, þar af sögðu 62,8 prósent að Skaupið hefði verið mjög gott og 27,7 prósent sögðu það frekar gott. Aðeins 10 svarendum, eða 1,1 prósent, fannst Skaupið mjög slakt og 2,2 prósent fannst það frekar slakt.
Þetta var því besta skaupið í mörg ár en Maskína sýnir niðurstöður frá árinu 2011. Næstbesta skaupið var árið 2022 þar sem 89,2 prósentum fannst það gott en aðeins 5 prósentum fannst það slappt.

Skaupið lagðist vel í landsmenn þvert á kyn, aldur, tekjur og pólitískar skoðanir. Helsti munurinn er á afstöðu fólks eftir landshlutum en íbúar Austurlands voru óánægðastir með skaupið þar sem aðeins 70,6 prósent fannst það gott.
