fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Svarar til saka – Stofnaði barni í lífshættu með því að skilja hlaupbangsa eftir á glámbekk

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einstaklingur hefur verið ákærður fyrir hegningarlagabrot, fíkniefnalagabrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa árið 2023 stofnað lífi og heilsu barns í hættu með því að skilja eftir hlaupbangsa með kannabis sem barnið komst í. Barnið var flutt með forgangsakstri sjúkrabifreiðar á Landspítalann og lagt inn á gjörgæslu með eitrun.

Í nafnhreinsaðri ákæru sem DV hefur undir höndum er viðkomandi ákærður fyrir brot gegn 4. mgr. 220 gr. almennra hegningarlaga og 98. gr. barnaverndarlaga:

Hættubrot og brot gegn barnaverndarlögum, með því að stofna á ófyrirleitinn hátt lífi og heilsu drengsins A, kt. [ ], í augljósan háska og vanrækja umönnun hans þannig að lífi hans og heilsu hans var hætta búin, laugardaginn [ ], með því að hafa að [ ], skilið eftir hlaupabangsa sem innihélt kannabis (THC gúmmibangsa) sem drengurinn komst í og innbyrti tvo til þrjá þeirra, með þeim afleiðingum aðhann missti meðvitund og hlaut eitrun og var  síðan fluttur með forgangi í sjúkrabifreið frá [ ] á Landspítalann, þar sem hann var lagður inn á gjörgæslu vegna alvarlegrar meðvitundarskerðingar en hann svaraði einungis verulega sársaukafullu áreiti og var með merki eitrunar en þvagsýni hans gaf til kynna að hann væri undir áhrifum kannabis.

Viðkomandi er einnig ákærður fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, þann 2. júlí 2023, haft í vörslum sínum samtals 4,58 g af kannabisblönduðu efni, 48,85 g af kannabislaufum og 0,47 g af amfetamíni, sem lögreglan fann við leit á heimili ákærða.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er krafist upptöku á þremur kannabisblönduðum hlaupaböngsum 4,58 g, 48,85 g af kannabislaufum og 0,47 g amfetamíni.

Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness þann 22. janúar og verður þinghald lokað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“