

Samkomulag náðist á milli Harðar Ólafssonar læknis og Haddar Vilhjálmsdóttur almannatengils um að málið yrði látið niður falla þegar fyrirtaka þess fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Vísir greindi fyrst frá en lögmaður Haddar, Auður Björg Jónsdóttir, staðfesti þessa niðurstöðu við miðilinn.
Hörður höfðaði meiðyrðamál gegn Hödd og krafðist þess að tiltekin ummæli hennar um samband þeirra á árum áður yrði dæmd dauð og ómerk og henni yrði gert að greiða fimm milljónir króna í miskabætur vegna þeirra.
Sjá einnig: Hörður hafnar með öllu ásökunum Haddar og ætlar í mál dragi hún orð sín ekki tilbaka
Málið varðaði ummæli Haddar í Facebook-færslum í júlí í fyrra þar sem hún sakaði Hörð um nauðgun og annað ofbeldi fyrir um fimmtán árum síðan. Hörður neitaði staðfestlega sök í málinu og sagði ásakanirnar glórulausar og fjarstæðukenndar. Í ágústmánuði greindi Hödd svo frá því að henni hefði verið stefnt af Herði vegna málsins en þá hafði hún neitað því að draga ummælin tilbaka.