

Slökkviliðið er með mikinn viðbúnað í Gufunesi þar sem eldur kom upp í skemmu. Reykur sést víða á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan beinir því til íbúa á svæðinu að loka gluggum.
Lögreglan segir í tilkynningu:
„Klukkan 17:03 var tilkynnt um mikinn eld í skemmu við Gufunesveg í Grafarvogi.
Lögregla vill koma þeim skilaboðum til íbúa sem búa í nágrenni við Gufunesveg að loka gluggum. Mikinn reyk leggur frá skemmunni og leggur hann til suðurs.
Frekari upplýsingar verða veittar síðar.“
Að sögn Vísis er skemman í nokkurri nálægð við kvikmyndatökuver Reykjavík Studios, sem er í eigu kvikmyndagerðarmannsins Baltasars Kormáks. Vísir sýnir beint frá brunanum.
RÚV greinir frá því að skemman sé í eigu Reykjavíkurborgar en TrueNorth hefur haft hana til umráða og geymt í henni stórt safn leikmuna úr fyrri verkefnum. Skemman hefur gjarnan verið kölluð FÚSK og er um 1.200 fermetrar að stærð.

