fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Óli Palli íhugar að flytja til Reykjavíkur og taka húsið með sér

Ritstjórn DV
Mánudaginn 12. janúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Páll Gunnarsson, hinn landsþekkti útvarpsmaður, sendi fyrir skemmstu fyrirspurn til skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar þar sem hann velti því upp hvort mögulegt væri fyrir hann að flytja hús sitt við Skólabraut 33 á brott.

Fjallað er um þetta á vef Skagafrétta þar sem haft er eftir Ólafi að hann sé að velta fyrir sér hvað hann eigi að gera við restina af lífinu.

„Allt mitt fólk er flutt frá Akranesi til Reykjavíkur og þau eru að ýta á mig að flytja líka. Ég var í 3 ár öllum stundum að gera upp þetta hús sem mér finnst dásamlegt að búa í. Ef ég flyt þá þá vildi ég skoða þá möguleika sem eru í stöðunni á flutningi á húsinu. Það er alltaf verið að flytja svona hús,” segir Ólafur meðal annars við Skagafréttir.

Húsið sem um ræðir var byggt árið 1910 en hann keypti það árið 2014 og var það í slæmu ástandi. Hann tók húsið rækilega í gegn og er mikil prýði af því í bænum eftir framkvæmdirnar.

Í frétt Skagafrétta kemur fram að í fyrirspurn Ólafs hafi verið spurt hvort skipulagsleg eða lagaleg atriði kæmu í veg fyrir að hann gæti flutt húsið á brott.

Í svarinu kemur fram að húsið falli undir svokallaða hverfisvernd sem þýðir að ekki er hægt að breyta, fjarlægja eða rífa núverandi húsnæði af lóðinni nema með breytingu á deiliskipulagi.

Frétt Skagafrétta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“