Leiðsögumaður sem fór með hóp í Reynisfjöru í morgun furðar sig á að fjaran hafi verið opin og merkingin aðeins „miðlungshætta“. Veðrið hafi verið kolvitlaust og aldan gengið alveg upp á malbik.
„Ég myndi frekar líta það ábyrgðarhluta að loka ekki hliðinu og breyta ekki ljósinu,“ segir Hlíf Ingibjörnsdóttir, leiðsögumaður. Hún var í Reynisfjöru í morgun, um klukkan 8:20, með 17 manna hóp ferðamanna.
„Í morgun var mikil undiralda því það er búið að vera brjálað rok síðan í gær. Ég fór ekki yfir Reynisfjall í gær því það voru 22 metrar á sekúndu í hviðum. Svo var líka flóð. Þegar ég sneri mér við til að fara í burtu kom alda alveg upp á malbikið,“ segir Hlíf. En hún fer mjög reglulega með hópa í Reynisfjöru og þekkir aðstæður á svæðinu mjög vel.
Hlíf stóð ekki á saman og ákvað að hringja í Neyðarlínuna 112 og þaðan fékk hún samband við lögreglu. Hjá lögreglu hafi hún fengið þau svör að á síðasta fundi um málið hafi enginn vilja taka að sér ábyrgðina að dæma hvenær ætti að loka og hvenær ekki. Það sé sem sagt komið upp rosalega flott kerfi en enginn til að stjórna því.
„Persónulega finnst mér að hver og einn beri ábyrgð á sjálfum sér en þegar aðstæður eru augljóslega svona hættulegar þá þarf að loka þessu,“ segir Hlíf.
Hún segir að sem betur fer hafi ekki verið komið mikið af fólki en flest fólk mætir upp úr klukkan 9:00. Hún segir líka að aðstæður þarna geti verið mjög blekkjandi.
„Við heimafólk vitum að það var sunnanátt í gær þannig að aldan er stór þó hún virðist ekki vera það. Við vitum líka að þegar blæs norðanátt þá er ekki alveg eins hættulegt þó það sé undiralda. Það þarf einhvern sem þekkir aðstæðurnar og hvenær þessi ólagsalda kemur,“ segir hún. „Það er virkilega vont veður þarna.“
Hún segir gott að björgunarhringurinn sé aftur kominn þó að hann hafi ekki alltaf sýnt gildi sitt. Þá nefnir hún að skiltið sé villandi fyrir suma ferðamenn og mætti vera miklu skýrara. Á skiltinu standi „sneaker wave“ en ekki „sneaky wave“ eins og það ætti að vera. Sumt fólkið hennar hafi ekki skilið þetta.