fbpx
Laugardagur 16.ágúst 2025
Fréttir

Meintur níðingur á Múlaborg vel liðinn og sagður blíður við börn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 16. ágúst 2025 09:00

Leikskólinn Múlaborg við Ármúla í Reykjavík. Mynd: Reykjavíkurborg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Starfsmaður á leikskólanum Múlaborg, sem situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um kynferðisbrot gegn barni í leikskólanum, er samkvæmt heimildum DV almennt vel liðinn.

Honum er lýst sem dálitlum einfeldningi en sagður vera blíður við börn og vel liðinn af þeim og samstarfsfólki.

Samkvæmt heimildum DV hefur maðurinn starfað á Múlaborg innan við tvö ár. Hann hefur ekki áður starfað á leikskóla en vann áður í stórmarkaði. Maðurinn er tæplega 22 ára gamall, hann á íslenskan föður og erlenda móður.

Sagður hafa játað

Samkvæmt frétt Vísis, sem greindi fyrst frá málinu, játaði maðurinn brotið í lögregluyfirheyrslu. Hann var á miðvikudag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. ágúst, í þágu rannsóknar málsins.

Barnið sem varð fyrir meintu broti mannsins greindi foreldrum sínum frá atvikinu á þriðjudag. Sama dag var málið komið inn á borð lögreglu. Til skoðunar er hvort brotið hafi verið gegn fleiri börnum en ekkert liggur fyrir um það. Mun lögregla hafa tekið skýrslur af nokkrum börnum í tengslum við málið, væntanlega í Barnahúsi, þar sem slíkar skýrslutökur fara vanalega fram.

Samkvæmt heimildum Vísis fengu foreldrar barna á leikskólanum bréf frá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar á föstudagsmorgun þar sem þau voru upplýst um málið.

Sjá einnig: Jón Gnarr tjáir sig um kynferðisbrotamálið á Múlaborg – Á barnabörn á deildinni og furðar sig á viðbragðaleysi borgarinnar

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Íbúar á Þórshöfn kvarta sáran undan hávaða og mengun – „Ég get ekki sætt mig við það að þetta sé komið til að vera svona í framtíðinni“

Íbúar á Þórshöfn kvarta sáran undan hávaða og mengun – „Ég get ekki sætt mig við það að þetta sé komið til að vera svona í framtíðinni“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega
Fréttir
Í gær

Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni

Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni
Fréttir
Í gær

Starfsmaður fiskvinnslufyrirtækis lagði fram kæru eftir að hafa verið sagt að mæta í vinnuna í vinnslustöðvun

Starfsmaður fiskvinnslufyrirtækis lagði fram kæru eftir að hafa verið sagt að mæta í vinnuna í vinnslustöðvun
Fréttir
Í gær

Stefán segir skemmdarfýsn hafa ráðið för í Tjarnargarðinum – „Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu“

Stefán segir skemmdarfýsn hafa ráðið för í Tjarnargarðinum – „Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Erlendur síbrotamaður sem fór huldu höfði rekinn úr landi

Erlendur síbrotamaður sem fór huldu höfði rekinn úr landi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakamál klúðraðist vegna skyldleika lögreglumanns og brotaþola

Sakamál klúðraðist vegna skyldleika lögreglumanns og brotaþola