fbpx
Sunnudagur 27.júlí 2025
Fréttir

Ólafur segir áfengisfráhvörf geta verið lífshættuleg – „Hún er komin i deleríum þegar ofskynjanir eða rugl bættist við“

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 27. júlí 2025 19:00

Ólafur Þór geðlæknir skrifar um timburmenn. Samsett mynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir, lýsir timburmönnum í aðsendri grein á akureyri.net. í dag. Bendir hann á að áfengisfráhvörf geti verið lífshættulegt ástand.

Ólafur segir að vera timbraður sé orðalag um afleiðingar af notkun áfengis og lýsi fráhvarfi eftir drykkju áfengis í eitt kvöld eða eina helgi. Þetta sé líkamlegt ástand, eftir notkun vímuefnis sem í raun hafi eitrunaráhrif og einkennin séu höfuðverkur, roði og heit húð, slen, hraður hjartsláttur, spenna og svefnleysi.

„En þar sem áfengi er hugbreytandi efni eru einkennin líka andleg með kvíða og depurð, viðkvæmni fyrir hljóðum og ytra áreiti, skapbreytingum, pirringi og skertri ályktunarhæfni og einbeitingu,“ segir hann í greininni.

Heilinn bilaður

Eftir hið efnafræðilega vellíðunarástand vímunnar birtist þynnka fráhvarfsins sem með endurtekningu leiði til aukinnar löngunar í efnið og vímu þess og vaxandi þols. Afréttarinn sé til að milda truflandi einkenni fráhvarfsins. Það sé alvarlegt merki um að fíkn sé að myndast þegar viðkomandi þurfi að drekka hraðar eða meira til þess að geta skemmt sér í boðinu.

„Áfengisfráhvarf eftir langvarandi fyllerí eða samfellda áfengisnotkun er lífshættulegt ástand,“ segir Ólafur. „Efnaskipti eru eitruð, innri líffæri eins og lifrin óstarfhæf og óeðlilegt og hættulegt álag verður á hjartað. Heilinn er bilaður og mikill óróleiki og skjálfti gerir vart við sig og að lokum hverfur raunveruleikaskyn og vitræn starfsemi truflast. Hann er með tremma er þá sagt eða hún er komin i deleríum þegar ofskynjanir eða rugl bættist við.“

Hættuleg dempun á stýringu öndunar

Annað dæmi um alvarlegan skaða sem hlýst af völdum áfengisdrykkju er bráð áfengiseitrun eða áfengisdauði útihátíðarinnar. Þetta gerist oft hjá ungu fólki og þessu fylgir meðvitundarleysi og lífshættuleg dempun á stýringu öndunar.

Hið þriðja dæmi er svo áhrifamikil breyting á heilsu, hegðun, hugsun og hamingju sem alkóhólistinn og fjölskylda hans verður fyrir sökum drykkjunnar.

Nota skynsemi og þekkingu

„Vertu varkár í umgengni þinni við áfengi,“ segir Ólafur að lokum. „Ef þú færð timburmenn eða drekkur illa, eða margir drykkjumenn eru í ættinni þinni, þá ættir þú að hugleiða að nota alls ekki áfengi. Ef þú ert undir álagi, í samskiptaerfiðeikum eða í sorg. Svo ekki sé talað um andleg veikindi eða einbeitingatruflun. Þá ættir þú að fara sérstaklega varlega í áfengisnotkun. Fræddu börnin þín og hvettu þau til að bragða ekki áfengi fyrir tvítugt, á meðan heilinn er enn að þroskast. Ef þú velur að nota áfengi, settu þér þá reglur um notkun þess, notaðu skynsemi, þekkingu og varkárni.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Lögðu á miðjum vegi og á móti umferð – „Vorum næstum búin að klippa hurðina af bílnum þegar við keyrðum fram hjá“

Lögðu á miðjum vegi og á móti umferð – „Vorum næstum búin að klippa hurðina af bílnum þegar við keyrðum fram hjá“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Ellefu stungnir í hrottalegri árás í Walmart

Ellefu stungnir í hrottalegri árás í Walmart
Fréttir
Í gær

Kærði 25 ára gamla ákvörðun til að koma í veg fyrir nýja bálstofu í Gufunesi

Kærði 25 ára gamla ákvörðun til að koma í veg fyrir nýja bálstofu í Gufunesi
Fréttir
Í gær

Handtóku mann sem þóttist vera sendiherra – Sagðist vera baróninn af Vestur Arktíku

Handtóku mann sem þóttist vera sendiherra – Sagðist vera baróninn af Vestur Arktíku
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mökkaður Teslu-eigandi fær ekki bætur frá VÍS eftir að hafa rústað bílnum

Mökkaður Teslu-eigandi fær ekki bætur frá VÍS eftir að hafa rústað bílnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varaþingmaður segir fjölmiðla og stjórnvöld hafa farið fram með offorsi – Ekki hættulegra að búa í Grindavík en víða annars staðar

Varaþingmaður segir fjölmiðla og stjórnvöld hafa farið fram með offorsi – Ekki hættulegra að búa í Grindavík en víða annars staðar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dó í farþegaflugi skammt frá Íslandi – Nú veit enginn hvar líkið er niðurkomið

Dó í farþegaflugi skammt frá Íslandi – Nú veit enginn hvar líkið er niðurkomið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Enn fleiri skilaboð Trump til Epstein líta dagsins ljós – „Þú ert bestur“

Enn fleiri skilaboð Trump til Epstein líta dagsins ljós – „Þú ert bestur“