fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Fréttir

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 5. júní 2025 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eignir sem Vinnumálastofnun tók á leigu fyrir einstaklinga sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi standa auðar. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir þetta í samtali við Morgunblaðið í dag og segir að um sé að ræða „sóun á almannafé skattgreiðenda“.

Vilhjálmur lagði fyrir skemmstu fram fyrirspurn til Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um þetta þar sem fram kom að Vinnumálastofnun hefði 37 eignir og 93 hótelherbergi á leigu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Í frétt Morgunblaðsins er haft eftir Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar, að umræddir leigusamningar séu óuppsegjanlegir. Alls standi tíu hús ónotuð og útlit sé fyrir að þau muni standa tóm þar til samningar renna út. Erfiðlega hafi gengið að finna not fyrir þessar eignir.

Segir hún að ófyrirséð fækkun umsókna um alþjóðlega vernd sé ástæða þess að húsin standi tóm.

Vilhjálmur gagnrýnir í samtali við Morgunblaðið hversu mikið álag er til dæmis í Reykjanesbæ. Þannig hafi 246 umsækjendur um alþjóðlega vernd dvalið þar þann 1. maí síðastliðinn en aðeins 138 í Reykjavík.

„Mér fannst svör­in draga fram hversu mikið álag var sett á eitt sam­fé­lag um­fram önn­ur, sem mér finnst vera mjög al­var­legt mál,“ segir hann við Morgunblaðið þar sem nánar er fjallað um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Í gær

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk