Fasteignafélagið Bergey er nýr eigandi Herkastalans við Kirkjustræti 2. Bergey keypti eignina á uppboði á 865 milljónir króna. Leigutaki hússins er Old Town Guesthouse.
„Herkastalinn er án efa ein fallegasta bygging Reykjavíkur og á sér merkilega sögu,“ segir Magnús Berg Magnússon stjórnarformaður Bergeyjar í tilkynningu.
Herkastalinn var byggður árið 1916 eftir teikningum Einars Erlendssonar arkitekts og er húsið friðað, en slíkt gerist sjálfkrafa þegar hús verða 100 ára.. Árið 1929 var tveimur hæðum bætt við. Húsið er nú þriggja hæða auk kjallara og rishæðar, alls 1405 fermetrar.
Herkastalinn var lengstum gistiheimili Hjálpræðishersins.
Húsið var síðast í eigu félagsins NQ fasteignir, sem var í eigu Quang Le. Húsleit var gerð í húsinu eftir að Le var handtekinn, grunaður um mansal, peningaþvætti og fleira í mars 2024.
Magnús Berg segir í samtali við Morgunblaðið að mikil tækifæri felist í húsinu og staðsetningu þess. „Það á skilið að vera með góðan og skemmtilegan rekstur.“
Bergey á í dag 13 fasteignir, sex þeirra eru í miðbænum og fimm þeirra steinsnar við hann.
Viðskiptablaðið fjallaði um félagið í nóvember 2023, sem þá átti átta fasteignir.
Magnús Berg, fyrrum forstjóri danska hönnunarfyrirtækisins Norr11, Torfi G Yngvason, einn stofnenda og fyrrum forstjóri Arctic Adventures, og Jónas Pétur Ólason fara fyrir félaginu. Þeir eru jafnframt meðal stærstu hluthafa félagsins. Starfsemi félagsins er leiga atvinnuhúsnæðis.
Á meðal eigna félagsins eru elsta hótelbygging Reykjavíkur, Ránargata 4a. „Þetta er eitt elsta hótel Reykjavíkur sem var upphaflega rekið undir merkjum City Hotel. Þessi sögufræga bygging var í slæmu ástandi þegar við keyptum hana. Við réðumst í töluverðar endurbætur og í dag er rekið gríðarlega flott 30 herbergja „boutique“ hótel í húsinu undir merkjum Local 101,“ sagði Magnús við VB.
Í maí keypti Bergey Digranesveg 5 í Kópavogi, 2.460 fermetra skrifstofuhúsnæði. Húsið, sem var byggt árið 1974, hefur hýst margvíslegar opinberar og einkareknar stofnanir, þar á meðal Reiknistofu Bankanna, Útvegsbanka Íslands og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Byggingin er hönnuð af Gísla Halldórssyni og Teiknistofunni Ármúla 6, sem hönnuðu margar þekktar opinberar byggingar. i. Meðal annarra verka Gísla eru Tollhúsið í Reykjavík, Laugardalshöllin og Hótel Loftleiðir. Í dag eru þar SÍM og Hljóðbókasafnið.
Í apríl greiddi Bergey 700 milljónir fyrir Snorrabraut 37 í Reykjavík, sem best er þekkt sem Austurbær eða Austurbæjarbíó. Austurbæjarbíó sögufrægasta menningarbygging Reykjavíkur, vígt sem kvikmyndahús árið 1947. Húsið var hannað af Herði Bjarnasyni, Gunnlaugi Pálssyni og Ágústi Steingrímssyni, og byggt af athafnamönnum í Reykjavík fyrir tilstuðlan Tónlistarfélagsins í Reykjavík. Byggingin er í íslenskum fúnkísstíl og var sérstaklega hönnuð með tilliti til tónlistarflutnings og hljómburðar. Stórt svið hússins rúmaði allt að 40 manna hljómsveit, og þar tróð meðal annars breska hljómsveitin The Kinks upp árið 1965.
Á efri hæð hússins var skemmtistaðurinn Silfurtunglið rekinn á árunum 1955–1975, en síðar opnaði kvikmyndahúsið Bíóborgin, sem var fyrsta bíó landsins með THX-hljóðkerfi. Pílustaðurinn vinsæli Bullseye hefur verið rekinn í húsinu í nokkur ár.
Á sama tíma og Bergey keypti Austurbæjarbíó tóku Steinþór Helgi Arnsteinsson og Ásgeir Guðmundsson, eigendur staðanna Röntgens og Skreiðar, við rekstri Bullseye og Austurbæjarbíós. Hafa þeir metnaðarfull áform um að blása lífi í húsið með viðburðum, tónleikahaldi og áframhaldandi þróun Bullseye sem pílustaðar. Ágúst Einþórsson, einn af stofnendum Brauð & co og eigandi BakaBaka og Hressó, er með þeim og mun sjá um veitingar í húsinu.
Í september 2024 keypti Bergey gömlu Mjólkurstöðina við Snorrabraut 54 fyrir 400 milljónir króna. Húsið var byggt árið 1929 af Mjólkurfélagi Reykjavíkur eftir teikningum Einars Erlendssonar húsameistara. Húsið á sér merkilega sögu en á eftir Mjólkurfélaginu var þar um árabil Osta- og Smjörsalan. Þá hóf fyrsta frjálsa útvarpsstöð landsins, Bylgjan, útsendingar í húsinu og síðar voru þar höfuðstöðvar nýsköpunarfyrirtækisins OZ og Söngskólans í Reykjavík. Húsið sem er 1100 fermetrar er í breytingaferli og þar mun opna 23 herbergja íbúðahótel haustið 2025.
Í nóvember 2023 greiddi Bergey 335 milljónir fyrir öll atvinnurými, fimm talsins, í nýbyggingu við Borgartún 24. Húsið er 64 íbúða fjölbýlishús á sjö hæðum með atvinnurými á fyrstu hæð. Slippurinn, Sjöstrand og Golf 24 eru komin í húsið.
Aðrar fasteignir eru Borgartún 26, þar sem einkarekna heilbrigðisstöðin Intuens er, Borgartún 28, þar sem Advania og Varðan eru, Hverfisgata 40-42, þar sem Reykjavík Sportbar er, Hverfisgata 4 þar sem veitingastaðurinn OTO er, Klapparstígur 28-30, þar sem veitingastaður Monkeys Food and Wine og Kokteilbarinn eru, Laugavegur 17-19, sem hýsir hýsir flaggskipsverslun 66°NORTH, Einhella 4 í Hafnarfirði þar sem Snjallgeymslur eru til húsa,