Jón Þór Dagbjartsson var í dag dæmdur í sex ára fangelsi fyrir árás á Hafdísi Báru Óskarsdóttur fyrrum sambýliskonu sína og barnsmóður, á Vopnafirði í október í fyrra. Jón Þór er einnig dæmdur til að greiða henni rúmar þrjár milljónir króna í bætur.
Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands í dag og greindi Austurfrétt fyrstur miðla frá.
Jón Þór var ákærður fyrir kynferðislega áreitni og húsbrot með því að hafa að kvöldi sunnudagsins 13. október 2024 farið í heimildarleysi inn á heimili Hafdísar og síðan inn í svefnherbergi hennar þar sem hún var stödd, haldið henni niðri í rúmi hennar, reynt að kyssa hana, káfað á henni og rifið hana úr buxum og nærbuxum, áður en Hafdís náði að ýta honum af sér og koma honum fram á gang í húsinu, og eftir það neitað að yfirgefa heimilið þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir Hafdísar um það.
Jón Þór reyndi síðan að myrða Hafdísi þremur dögum síðar, síðdegis miðvikudaginn 16. október. Brotið var framið í skemmu við heimili Hafdísar þar sem Jón Þór veittist að henni með rúllubaggateini og notaði hann til að reyna að stinga hana í kviðinn. Hann ýtti við henni þar til hún féll til jarðar og notaði síðan teininn til að þrengja að hálsi hennar með þeim afleiðingum að hún hætti að geta andað og meðvitund hennar skertist. Hlaut Hafdís töluverða áverka af árásinni og var flutt á sjúkrahús á Akureyri.
Jón Þór hefur setið í gæsluvarðhaldi frá miðjum október og dregst sá tími frá sex ára dómnum.
Jón Þór var einnig dæmdur til að greiða Hafdísi Báru 3,1 milljónir króna í miskabætur og allan sakarkostnað, rúmar 15 milljónir króna.
Jón Þór varr einnig ákærður fyrir líkamsárás á mann á Vopnafirði í nóvember árið 2023. Er hann sakaður um að hafa veitt manninum ítrekuð högg í andlit og líkama, meðal annars með áldós. Hlaut maðurinn umtalsverða áverka af árásinni.
Jón Þór var einnig ákærður fyrir vopnalagabrot en um sama leyti og árásin átti sér stað fann lögregla 14 skotvopn við húsleit á heimili hans auk fjölda skotfæra. Hafði hann ekki skotvopnaleyfi og vopnin voru ekki skráð á hann.
Jón Þór var dæmdur til upptöku skotvopnanna, átta haglabyssur, fjórir rifflar, einn afsagaður riffill og kindabyssa verða því gerð upptæk auk skotfæra.