fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Bassi sakfelldur fyrir líkamsárás en fær vægan dóm – Var að reyna að ná símanum sínum úr höndum leigubílstjóra  

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 25. júní 2025 11:59

Bassi Maraj. Youtube-skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn og tónlistarmaðurinn Bassi Maraj, öðru nafni Sigurjón Baltasar Vilhjálmsson, hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás á leigubílstjóra.

Ákært var vegna atviks sem átti sér stað fyrir um tveimur og hálfu ári, 11. febrúar árið 2023, við götuna Tangabryggju í Reykjavík. Var Bassi sakaður um að hafa veist að leigubílstjóra með ofbeldi, bitið hann, kýlt hann og tekið hann kverkataki. Hann var einnig sakaður um að vefja greiðsluposasnúru um háls brotaþola Var hann sýknaður af hluta af þessum ásökunum. Brotaþoli hlaut mar, bitför og aðra yfirborðsáverka eftir árásina. Bassi var einnig ákærður fyrir hótanir.

Leigubílstjórinn krafði Bassa um 14 þúsund krónur fyrir farið, en eðlilegt verð fyrir ökuleiðina væri í dag 6 til 7.000 krónur. Bassi gekk frá leigubílnum án þess að borga en bar við í yfirheyrslum lögreglu og fyrir dómi að hann hafi verið að sækja vin til að greiða fargjaldið fyrir sig. Leigubílstjórinn gekk á eftir Bassa og hrifsaði símann hans úr höndum hans. Hófust upp úr því átök milli mannanna þar sem Bassi reyndu að endurheimta símann. Tókust þeir á inni í leigubílnum.

Fyrir dómi sagði Bassi að eingöngu hafi vakað fyrir honum að ná í símann sinn aftur. „Hann hafi verið í miklu uppnámi vegna þess að brotaþoli hafi tekið símann af honum og ætlað að aka í burtu með hann. Í símanum geymi ákærði öll sín persónulegu gögn. Allt hans líf sé í símanum, en hann noti ekki öryggisnúmer til að komast inn í símann og því væri auðvelt fyrir aðra að komast í viðkvæm gögn ákærða. Síminn hafi verið nýlegur og kostað yfir 300 þúsund krónur,“ segir orðrétt í dómnum.

„Átökunum er best lýst sem hnoði“

Brotaþoli sagðist hafa óttast um líf sitt og velferð í átökunum en í dómnum er staðfest að átökin hafi hafist með því að Bassi reyndi að endurheimta síma sinn og öll framganga hans í átökunum snerist um að komast aftur yfir símann. Er það niðurstaða dómsins að Bassi hafi ekki haft ásetning um að meiða bílstjórann þegar hann veittist að honum heldur hafi tilgangurinn verið sá að endurheimta símann sinn. Segir að átökunum sé „best lýst sem hnoði þar sem ákærði hálfliggur yfir brotaþola og reynir að ná af honum símanum.“ Segir að á upptöku sjáist báðir mennirnir bíta hvor annan. „Ákærði herðir þó hvorki hálstakið né snúruna um háls brotaþola,“ segir orðrétt í dómnum.

Niðurstaðan er engu að síður sú að Bassi er sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt ákæru, fyrir utan að hann var sýknaður af því að hafa kýlt brotaþola og hert að hálsi hans.

Var hann dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Hann var einnig dæmdur til að greiða brotaþola 150 þúsund krónur í miskabætur og rúmlega 167 þúsund krónur í málskostnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“
Fréttir
Í gær

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“