fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. júní 2025 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi lögreglumennirnir Jón Óttar Ólafsson og Guðmundur Haukur Gunnarsson, eigendur spæjarastofunnar PPP sf., höfðu í fórum sínum margfalt meira magn viðkvæmra upplýsinga en áður hefur verið greint frá. Um er að ræða gögn sem þeir Jón og Óttar höfðu ekki heimild til að hafa í vörslum sínum og áttu að hafa skilað eða eytt. Þetta kom fram í ítarlegri umfjöllun Kastljóss í gærkvöldi.

Viðkvæmar upplýsingar

Gögnin sem PPP komst yfir á árunum eftir hrun eru margvísleg og viðkvæm. Þeirra á meðal eru símtalsupptökur úr rannsóknum sérstaks saksóknara, tölvupóstar starfsmanna fjármálafyrirtækja og einkagögn einstaklinga. Í heildina má finna í gögnunum á þriðju milljón tölvupósta.

Kastljós fjallar sérstaklega um að PPP hafi haft í fórum sínum eins konar „masterlykil“ að kerfum Glitnis banka. Þannig hafði PPP skrá yfir lykilorð starfsmanna og aðgang að upplýsingum um flest allt sem finna má í einum banka. Kastljós segir að meðal gagna séu upplýsingar sem eru svo viðkvæmar að allt að tveggja ára fangelsi kann að bíða þeirra sem ekki virða trúnað um þær.

Eins hafði PPP í fórum sínum tölvupósta starfsmanna, móttekna, senda og jafnvel tölvupósta sem hafði verið eytt. Eins má finna þarna afrit af fartölvum lykilstarfsmanna þar með talið tölvum Bjarna Ármannssonar og Lárusar Welding, fyrrum bankastjóra. Þar má finna viðkvæm trúnaðargögn sem varða bæði störf bankastjóranna sem og persónuleg einkagögn þeirra og fjölskyldna þeirra. Um 1500 upptökur úr borðsímum starfsmanna eru á meðal gagnanna, en um er að ræða samtöl starfsmanna hver við annan og við viðskiptavini.

Einnig er þarna að finna drif sem virðist innihalda öll vinnugögn rannsóknarteymis slitastjórnar Glitnis, þar með talið afrit af tölvu eða heimasvæði forstöðumanns teymisins þar sem finna má persónuleg gögn um hann og fjölskyldumeðlimi hans.

Annað gagnasafn varðaði eitt umsvifamesta fjárfestingafélag landsins fyrir hrun, Baug hf. PPP fékk gagnapakka um Baug frá slitastjórn Glitnis. Þar mátti finna afrit af tölvum starfsmanna Baugs og fleira. PPP fór rækilega yfir gagnasafnið og tók saman sérstaka möppu sem heitir: „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“ en þar má finna tölvupósta stjórnenda og starfsmanna Baugs sem hafa ekkert að gera með þau mál sem slitastjórn Glitnis hafði til skoðunar.

Spæjarastofan fékk 50 milljónir greiddar frá slitastjórninni fyrir þriggja mánaða gagnagreiningu árið 2012. Jafnvel vinnugögn slitastjórnarinnar sjálfrar enduðu í fórum PPP sem geymdi gögnin áfram þó að vinnu þeirra væri lokið.

Áttu að hafa eytt gögnunum

Kastljós greinir frá því að slitastjórnin hafi fengið PPP þetta verkefni út af reynslu eigendanna, Jóns Óttars og Guðmundar, sem væru hoknir af reynslu frá störfum sínum innan lögreglunnar og embættis sérstaks saksóknara. Þeir hafi átt að finna gögn í þessum stóru gagnapökkum til að varpa ljósi á viðskipti sem hefðu skaðað Glitni. Eftir að PPP hafði lokið störfum birtust fréttir um að Jón Óttar og Guðmundur hefðu verið kærðir fyrir brot gegn þagnarskyldu í störfum sínum fyrir sérstakan saksóknara. Núverandi talsmenn þrotabús Glitnis sögðu í samtali við Kastljós að þessi tíðindi hafi gert að verkum að slitastjórnin lagði sérstaka áherslu á að gögnin sem PPP hafði fengið yrðu ekki eftir í vörslum fyrirtækisins eða eigenda þess. Eins hafi utanaðkomandi sérfræðingur fylgt því eftir að gögnunum yrði eytt, en þá hafði PPP líklega þegar afritað gögnin.

Eins hafði PPP fengið gagnapakka frá VBS-fjárfestingarbanka en skiptastjóri bankans, Hróbjartur Jónatansson, sagði það hafa komið sér í opna skjöldu að PPP hefði tekið afrit af gögnunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu
Fréttir
Í gær

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“
Fréttir
Í gær

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri bregður út af vananum að eigin sögn, sleppir því að vera leiðinlegur þingmaður og telur upp 10 jákvæðar staðreyndir um íslenskt samfélag

Snorri bregður út af vananum að eigin sögn, sleppir því að vera leiðinlegur þingmaður og telur upp 10 jákvæðar staðreyndir um íslenskt samfélag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kurr meðal kristinna eftir frétt Moggans – „Ég á ekki um annað að ræða en að vara fólk við Morgunblaðinu“

Kurr meðal kristinna eftir frétt Moggans – „Ég á ekki um annað að ræða en að vara fólk við Morgunblaðinu“