Guðmundur Karl Snæbjörnsson sem var sviptur lækningaleyfi 5. júní, hefur sakað embætti landlæknis um að svipta hann leyfinu vegna gagnrýni hans á heilbrigðisyfirvöld og sóttvarnaraðgerðir. Ástæðan var sögð óeðlileg meðhöndlun. Guðmundur Karl hefur vakið athygli fyrir baráttu sína fyrir veipi og gegn bólusetningum við COVID-19.
Sjá einnig: Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi
Guðmundur Karl segir að ákvörðun landlæknis um að svipta hann læknaleyfi sé byggð á allt öðrum ástæðum en landlæknir tilgreinir í sviptingabréfinu sem honum var sent. Í Spjallinu með Frosta Logasyni segist Guðmundur hafa sent erindi til umboðsmanns Alþingis vegna þessa, en þar fullyrðir Guðmundur að landlæknir hafi sagt eitt og annað. Í viðtalinu kemur þó fram að ekkert af því sem Guðmundur segir átyllu sviptingarinnar standi í bréfinu, né öðrum samskiptum í aðdraganda sviptingarinnar.
„Þegar að við ætlum að fara með mál fyrir dómstóla þá verðum við að leggja fram einhver gögn til skýringar. Við dæmum ekki áður en við erum búin að, áður en dómurinn eða lögfræðingar þar eru búnir að skoða gögnin. Þeir leggja engin gögn fram, engin vísindaleg gögn, ekki einu sinni rök, nema bara upphrópanir. En þau dæma samt.“
Guðmundur segir að erindi frá landlækni dagsett 3. desember og 10. apríl séu eingöngu vegna símaþjónustu.
„Símaþjónustu sem læknir með fullt lækningaleyfi hefur bara einfaldlega réttindi til. Það sem ég gerði einfaldlega aukalega 24. mars 2024 var að ég tilkynnti þeim það. Ég þarf ekki að tilkynna það.“
Frosti les upp úr bréfinu til Guðmundar um sviptingu lækningaleyfis: „Þau segja að verulega hafi skort á upplýsingar með tilkynningunni. En við skoðun á heimasíðunum iskyinu.net og aderum.net kemur fram að þú býður upp á fjarlækningar í gegnum síma. Og svo kemur: Samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu hefur landlæknir eftirlit með heilbrigðisstarfsmönnum og heilbrigðisþjónustu og fylgist með að farið sé að ákvæðum heilbrigðislöggjafar. Og svo er hérna verið að óska eftir upplýsingum frá þér. Þú hefur sagt mér að þú sást ekki þetta bréf af því að þeir voru að nota annað netfang. Þannig að þeir senda þér aftur 10. apríl.“
Guðmundur svarar því til að hann hafi verið að drukkna í símtölum og því ætlað að setja þetta á skipulagðara form þar sem fólk gæti pantað sér tíma.
„Ég hef bæði sett upp sér símanúmer fyrir þessa þjónustu sem ég hætti síðan að nota og síðan email sem að ég setti sér fyrir það sem ég var hættur að nota þannig að ég náttúrlega fékk ekkert þessa [tilkynningu] og raunverulega þá þarf ég ekkert að svara. Þeir eiga að kunna lögin, að fullu lækningaleyfi þá fylgir það símaþjónustu.“
Frosti spyr enn ef staðan væri önnur ef Guðmundur hefði fengið fyrirspurnina á rétt netfang og svarað henni, að þá væri ekki búið að svipta hann lækningaleyfinu. Guðmundur neitar og segir aftur að það geti ekki svipting fylgt því að læknir með fullt lækningaleyfi hafi símaþjónustu eða tali við fólk í gegnum síma.
„Svona engin raunveruleikatengsl við ástæður sviptingar, það er nokkuð klárt.“
„Þessi dæmi sem þú tiltekur að þú sért sviptur lækningaleyfi fyrir, það er ekkert minnst á það í þessum bréfum sem enda í sviptingu,“ spyr Frosti. „5. júní er loksins sagt: „Embætti landlæknis hefur ítrekað gefið þér tækifæri til að koma að andmælum við fyrirhugaðri sviptingu starfsleyfis, eins og rakið er í fyrrgreindu bréfi dagsettu 10. apríl. Þetta virðist sem sagt bara vera svipting sem er byggð á misskilningi og vegna þess að það eru ekki samskipti. Þú svarar ekki neinum erindum frá þeim og þeir halda að þú sért með símaþjónustu sem þú auglýstir.“
Guðmundur endurtekur að öll erindi til hans hafi verið send á rangt netfang.
Guðmundur virðist þá bjóða Frosta að koma og skoða gögn sem hann geymir. „Velkomið að koma og hafa samband við mig.“
Frosti spyr enn og aftur hvort hefði ekki mátt koma í veg fyrir sviptinguna ef Guðmundur hefði einfaldlega svarað fyrirspurnum landlæknis, en svo gerði hann ekki um tveggja ára skeið.
„Þetta náttúrlega hefur ekkert með ástæður sviptingar að gera.“