fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
Fréttir

Snorri bregður út af vananum að eigin sögn, sleppir því að vera leiðinlegur þingmaður og telur upp 10 jákvæðar staðreyndir um íslenskt samfélag

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 17. júní 2025 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snorri Másson þingmaður Miðflokksins segir ábyrgð stjórnmálamanna mikla. Á þjóðhátiðardegi landsmanna sé því rétt að þeir bregði út af vana sínum, sleppi því að vera leiðinlegir og sneiði alfarið hjá því að segja eitthvað sem misbýður þjóðinni.

Á þjóðhátíðardaginn er viðeigandi að við sameinumst um þá ágætu hugmynd okkar að vera Íslendingar. Til þess að svo megi verða, er ábyrgð okkar stjórnmálamanna mikil. Á þessum degi er rétt að við bregðum út af vananum, sleppum því að vera leiðinlegir og sneiðum alfarið hjá því að segja eitthvað sem misbýður samlöndum okkar svo mjög að þeir hætti að vilja deila með okkur þjóðerni,“ segir Snorri í færslu á Facebook.

Í tilefni dagsins ákvað Snorri samkvæmt orðum sínum að hætta að vera leiðinlegur og telur hann upp tíu jákvæðar staðreyndir um íslenskt samféla, eins og yfirráð yfir auðlindum, félagslegan hreyfanleika, samheldni, stolt, virðingu fyrir tungumálinu og hollan mat.

Ég geri því hlé á iðju minni og býð í staðinn upp á tíu nokkuð jákvæðar staðreyndir um íslenskt samfélag í tilefni dagsins. Dæmi nú hver fyrir sig hvort við getum ekki bara verið sammála um þær flestar:

  1. Við erum sjálfstæð þjóð með full forráð yfir eigin auðlindum. Okkur hefur tekist með hugviti og eljusemi að hagnýta þær auðlindir í okkar eigin þágu. Sannarlega má deila um skiptingu gæðanna en það virðist að minnsta kosti ekki útbreidd skoðun að auðlindir þjóðarinnar séu í höndum óvinveitts andstæðings okkar.
  2. Það eru mikil lífsgæði að búa í okkar örugga samfélagi, þar sem traust nær slíkum hæðum að þeir rugluðustu skilja jafnvel útidyrahurðina eftir opna. Þar að auki er, í samanburði við mörg önnur samfélög, lítið um ofbeldi á Íslandi. Það er afar ríkt í okkar menningu að greiða heldur úr ágreiningi með öðrum hætti.
  3. Íslendingum hefur auðnast að komast í gegnum styrjaldarátök sögunnar án teljandi stóráfalla fyrir land og þjóð. Við erum sannarlega fjarri heimsins vígaslóð og höfum gert vel í að gefa það ætíð sterklega til kynna, að við erum ekki að reyna að trufla neinn.
  4. Sama hvað hver segir, ríkir töluvert meiri félagslegur hreyfanleiki á Íslandi en gengur og gerist. Ef þú getur eitthvað, er hreinlega það lítið af fólki hérna að þú hlýtur að fá glufu til að sanna það fyrr eða síðar. Auðvitað skiptir máli hvaðan þú kemur en það skiptir flesta meira máli hvert þú ert að fara.
  5. Í stofnanavæddu samfélagi þar sem flest verkefni samfélagsins eru komin í farveg þaulskipulagðra kerfa með fínpússuðum launatöxtum, eimir eftir af veröld sem var. Stór hópur fólks, bæði eiginlegra sjálfboðaliða og annarra, gefur vinnu í stórum stíl án þess að biðja um neitt í staðinn. Allt frá björgunarsveitum og hjálparsamtökum hvers konar og til listamanna sem eiga aldrei krónu eða atkvæðamanna í íþróttahreyfingu sem vinna út frá hugsjón einni saman. Ég veit ekki alveg hvar við værum án þessa fólks.
  6. Hér er raunverulega til eitthvað sem heitir samheldið samfélag með djúpar sameiginlegar rætur. Maður gleymir þessu auðvitað oft en man þetta svo snarlega þegar áföll dynja yfir. Þá gætir samtakamáttar sem máir hæglega út þær átakalínur sem kunna að vera á milli manna frá degi til dags. Þótt maður finni þetta einna skýrast í miðri gæsahúðinni yfir náungakærleiknum vegna einstakra atvika, eru áhrifin aðeins svona sterk af því að þetta er djúplega satt.
  7. Þótt vissulega hafi margir þverrandi trú á vissum einingum „kerfisins“ hér á landi, líður mér ekki eins og raunverulegar efasemdir séu uppi á meðal fólks um grunnstoðir hins lýðræðislega kerfis. Öllu heldur er sagt frá ríflegri kosningaþátttöku ungs fólks. Ég finn á þessum hópi að hann vill laga Ísland, búa á Íslandi og svo finn ég að eldra fólk hefur hér ekki allsendis misst þá trú, eins og víða annars staðar, að líf afkomenda þeirra geti orðið betra en þeirra.
  8. Íslendingar eru í grunninn stoltir af því að vera Íslendingar, að minnsta kosti ef við spólum til baka um svona fimmtán ár og leggjum til hliðar pólitískar þrætur okkar daga um þjóðerni.
  9. Virðing fyrir tungumálinu sameinar okkur þvert á þjóðfélagshópa, enda varðveitir tungumálið innsta kjarna menningar okkar. Sérstaða okkar í menningarsögu heims eru miðaldabókmenntir okkar, varðveittar á skinnbókum, sögur sem Íslendingar nútímans eru færir um að njóta til fulls án sérmenntunar. Frá landnámi hefur því verið hér einstæð menningarleg samfella á veraldarvísu.
  10. Loks er lykillinn að öllu hollur matur. Lambakjöt, nautakjöt, fiskur úr sjó, grænmeti og frábærar mjólkurvörur. Prótín er orð dagsins og við erum fyrirmynd heimsins í skyrinu. Bara drykkurinn Hleðsla er afburðavöruþróun. Nýlega sá ég síðan mikla byltingu sem er hreinn íslenskur kefír frá Mjólku með viðbættu íslensku mysuprótíni, sem annars fer til spillis. Á tímum „upplýsingaóreiðu“ um næringarfræði, erum við í góðri stöðu að geta bara gengið út frá greiðu aðgengi að hreinni og góðri íslenskri fæðu.

Gleðilega þjóðhátíð!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Snúa sér að Sancho
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögregluaðgerð á Edition hótelinu – Tveir látnir – Starfsfólk í uppnámi – Uppfært

Lögregluaðgerð á Edition hótelinu – Tveir látnir – Starfsfólk í uppnámi – Uppfært
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vafasömu ítölsku verktakarnir sem klúðruðu uppbyggingu Kársnesskóla flúnir land – Skorað á forsvarsmanninn að mæta fyrir dóm

Vafasömu ítölsku verktakarnir sem klúðruðu uppbyggingu Kársnesskóla flúnir land – Skorað á forsvarsmanninn að mæta fyrir dóm
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Nettó lýsti eftir bíræfnum þjófi – Netverjar voru ekki lengi að bera kennsl á krúttlega kappann

Nettó lýsti eftir bíræfnum þjófi – Netverjar voru ekki lengi að bera kennsl á krúttlega kappann
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Hjördís tók smálán til að ná endum saman og er föst í fátæktargildru – „Að glíma við mikla fátækt í kjölfarið og sé ég eftir því í dag“

Hjördís tók smálán til að ná endum saman og er föst í fátæktargildru – „Að glíma við mikla fátækt í kjölfarið og sé ég eftir því í dag“