fbpx
Föstudagur 13.júní 2025
Fréttir

Kröfu um atvinnurekstrarbann Ásgeirs til þriggja ára hafnað

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. júní 2025 21:30

Byggingarvinna. Mynd: Getty. Tengist frétt ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Sævars Þórs Jónssonar, skiptastjóra þrotabús Börk eignarhalds ehf. um atvinnurekstrarbann Ásgeirs Arnórs Stefánssonar til þriggja ára. Ásgeir Arnór var einn stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi félagsins frá stofnun þess árið 2019 og þar til félagið var tekið til gjaldþrotaskipta 3. apríl 2024.

DV fjallaði um aðalmeðferð málsins sem fram fór 27. maí. Í fréttinni var fjallað ítarlega um gjaldþrot fyrirtækja Ásgeirs í byggingarrekstri. Gjaldþrotin nema nær milljarði samtals, en um er að ræða fimm félög, þar af þrjú sem voru úrskurðuð gjaldþrota árið 2024. Ásgeir hefur einnig verið ákærður fyrir skattsvik í rekstri félaga sinna og fengið sektir vegna þess. Árið 2016 hrundi byggingarkrani á vegum fyrirtækis hans í miðborginni og var heppni að ekki hlaust manntjón af. 

Sjá einnig: Krafist atvinnurekstrarbanns yfir gjaldþrotakóngi – Slóð gjaldþrota eftir Ásgeir sem sakaður er um kennitöluflakk

Eins og áður kom fram var sóknaraðili í atvinnurekstrarbannsmálinu skiptastjóri í þrotabúi síðasta fyrirtækis Ásgeirs sem tekið var til gjaldþrotaskipta, Börk eignarhald ehf. Stærstu kröfuhafar í búið voru kaupendur fasteigna að Víkurgötu 3–7 í Garðabæ með samtals kröfur að fjárhæð 58.472.000 krónur. Aðrir kröfuhafar voru TM tryggingar hf. með kröfu að fjárhæð 71.620 krónur, Hringrás ehf. með 381.581 krónu, Skatturinn með 21.174 krónur og Fagkaup ehf. með samtals 20.368.685 krónur. 

Samkvæmt því sem fram kom í skýrslu Ásgeirs hjá skiptastjóra var Börk eignarhald ehf. eingöngu stofnað utan um byggingu raðhúsa að Víkurgötu 3–7 í Garðabæ. Við aðalmeðferð kom fram að ekki hafi tekist að ljúka byggingu fasteignanna og sem fyrr segir lýstu kaupendur kröfum sínum í búið. Þeir afturkölluðu síðan kröfulýsingar sínar með samkomulagi og útgáfu afsals af hálfu skiptastjóra. Eftir stóðu því lýstar kröfu í búið að fjárhæð 20.843.060 krónur sem ekki fengust greiddar

Í úrskurði dómara kemur fram að óumdeilt er að ársreikningum var skilað fyrir félagið og reglulegt bókhald haldið. Einnig var ársreikningum og skattframtölum félagsins skilað, en þessi gögn voru ekki lögð fyrir dóminn, né heldur bankayfirlit félagsins. Við aðalmeðferð tók skiptastjóri/sóknaraðili fram að gögn málsins bentu ekki til þess að misfarið hafi verið með fjármuni félagsins í rekstri þess eða að greiðslur hafi verið millifærðar af bankareikningi félagsins til Ásgeirs. Lá því ekkert fyrir um að fjármunir félagsins hafi verið nýttir í þágu Ásgeirs eða til persónulegra útgjalda hans eða að félagið hafi verið tæmt fyrir gjaldþrot.

Sagði Ásgeir sekan um kennitöluflakk

Í úrskurðinum eru helstu málsástæður og lagarök sóknaraðila og varnaraðila rakin.

Sóknaraðili byggði kröfu sína um atvinnurekstrarbann Ásgeirs á því að hann hafi með háttsemi sinni við stjórnun Börk eignarhalds ehf. valdið félaginu stórkostlegu fjártjóni með skaðlegum og óverjandi viðskiptaháttum. Hann hafi sýnt af sér skaðlega og óverjandi viðskiptahætti við stjórnun annarra félaga með takmarkaðri ábyrgð og að líta beri til þess við mat á kröfu sóknaraðila. Taldi sóknaraðili Ásgeir hafa gerst sekan um svokallað kennitöluflakk með því að stofna nýtt félag með sama nafni og nýta þannig viðskiptavild þess. Þegar fari að halla undan rekstri breyti Ásgeir nafni félaganna og haldi áfram rekstri og noti sama nafnið áfram. Hann hafi ítrekað komið að stjórnun félaga sem tekin hafa verið til gjaldþrotaskipta og fært eignir, a.m.k. óáþreifanlegar eignir, á milli félaga. Samkvæmt upplýsingum skiptastjóra hafi varnaraðili á síðustu 11 árum stjórnað a.m.k. fimm einkahlutafélögum sem hafi endað með gjaldþroti. 

Lesa má um rekstrarsögu Ásgeir í fyrri frétt DV.

Lögmaður Ásgeirs sagði engar forsendur fyrir kröfu um atvinnurekstrarbann

Lögmaður Ásgeirs, Magnús Jónsson, taldi engar forsendur til að samþykkja kröfu sóknaraðila. Ásgeir hafi verið tilbúinn að afhenda honum öll bókhaldsgögn en sóknaraðili aldrei óskað þeirra. Þá hafi engin gögn verið lögð fram sem bendi til þess að Ásgeir hafi ekki reynt að varna tjóni eða koma rekstri félagsins á réttan kjöl. Lögmaður Ásgeirs benti einnig á að hann hefði ekki komið einn að stjórnun félagsins 18 mánuðum fyrir frestdag gjaldþrots. Lögmaður Ásgeirs sagði það óvenjulegt að ekkert bókhald hafi verið lagt fram af hálfu sóknaraðila, ekkert yfirlit af bankareikningum og því miður geti varnaraðili ekki lagt þessi gögn fram þar sem hann hafi ekki aðgang að þeim. Verði þetta ekki gert verði sóknaraðili að bera hallann af því. Ásgeir hafi ekki tekið fjármuni úr félaginu fyrir sjálfan sig eða fært á sig eignir eða skuldað félaginu fjármuni. Þá hafi félagið ekki skuldað lögbundin gjöld, svo sem skatta, nema 21.174 krónur. Ekki er bent á til hvaða ráðstafana hann hefði átt að grípa í því skyni að varna félaginu tjóni, og einnig hafi COVID-tímabilið haft slæm áhrif á reksturinn. Taldi lögmaður Ásgeirs því ekkert tilefni til þess að úrskurða hann í atvinnurekstrarbann vegna stjórnunar Börk eignarhalds ehf.

Dómari taldi fyrri rekstrarsögu ekki fullnægjandi grundvöll

Í niðurstöðu sinni rakti héraðsdómari lagaákvæði og hvort að skilyrðum til að krefjast atvinnurekstrarbanns samkvæmt gjaldþrotalögum væri fullnægt. Við mat á því hvort skilyrðin séu uppfyllt skyldi meðal annars litið til hlutverks Ásgeirs við stjórnun félagsins sem og aðstæðna í heild sinni, meðal annars til hvaða ráðstafana hann hafi gripið til að varna tjóni, sbr. 2. mgr. 181. gr. gjaldþrotalaga.

Lýstar kröfur að fjárhæð 20.368.685 krónur hafi staðið eftir við gjaldþrot eftir að skiptastjóri gerði samkomulag við kaupendur fasteignanna, bókhaldi hafi verið skilað og skil hafi verið á opinberum gjöldum félagsins.

Sóknaraðili hafi tekið fram að krafa hans um atvinnurekstrarbann væri einkum til komin vegna forsögu Ásgeirs við stjórnun annarra félaga og taldi héraðsdómari að ekki yrði annað ráðið af málatilbúnaði sóknaraðila en að grundvöllur kröfu hans um atvinnurekstrarbann Ásgeirs sé einkum studdur við athafnir hans við stjórnun annarra félaga sem hafi farið í gjaldþrot undir hans stjórn á liðnum árum.

Samkvæmt 180. gr. laga um gjaldþrotaskipti er við það miðað að krafa skiptastjóra um atvinnurekstrarbann skuli beinast að því félagi sem skiptastjórinn hefur fengið úthlutað til skiptameðferðar, enda telji hann skilyrði 181. gr. laganna uppfyllt, þ.e. að stjórnandi félagsins teljist ekki hæfur til að stýra félagi með takmarkaðri ábyrgð vegna skaðlegra eða óverjandi viðskiptahátta við stjórnun þess félags.

„Að mati dómsins getur það ekki verið fullnægjandi grundvöllur fyrir kröfu skiptastjóra að reisa kröfu um atvinnurekstrarbann á hendur sóknaraðila einkum með vísan til athafna varnaraðila við stjórnun annarra félaga, sem takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um og ekki hefur verið gerð krafa um að varnaraðili sæti atvinnurekstrarbanni vegna af hálfu skiptastjóra þeirra félaga. Er því niðurstaða dómsins að virtum gögnum málsins að ekki séu uppfyllt skilyrði 1. mgr. 181. gr. laga nr. 21/1991 til að leggja atvinnurekstrarbann á varnaraðila vegna stjórnunar Börk eignarhalds ehf.“

Þóknanir beggja aðila greiðast úr ríkissjóði, sóknaraðila, 1.632.150 krónur, og skipaðs málsvara varnaraðila, 1.632.150 krónur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Gátu lítið hjálpað þolanda kynþáttaníðs á TikTok

Gátu lítið hjálpað þolanda kynþáttaníðs á TikTok
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Gunnar Smári bregst hart við: „Virðast stefna að því að eyðileggja þar allt sem hefur verið byggt upp“

Gunnar Smári bregst hart við: „Virðast stefna að því að eyðileggja þar allt sem hefur verið byggt upp“