Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari meistaraflokks kvenna í körfubolta hjá íþróttafélaginu Aþenu segir að eins og staðan er í dag verði starfsemi félagsins lögð niður þar sem ekkert gangi að semja við Reykjavíkurborg um áframhaldandi notkun á viðeigandi húsnæði en félagið hefur verið að nýta íþróttahúsið í Austurbergi í Breiðholti.
Brynjar greinir frá þessu í nýrri Facebook-færslu:
„Ef fram heldur sem horfir verður Aþena lögð niður í næstu viku. Ekkert bendir til þess að borgin vilji endurnýja samninginn og tíminn er útrunninn til að skipuleggja starfið fyrir næsta vetur. Stelpurnar eru þó staðráðnar í að berjast áfram og safna nú undirskriftum til stuðnings málinu.“
Brynjar fer síðan yfir eins og hann hefur gert áður tilganginn með stofnun Aþenu á sínum tíma:
„Aþena var stofnað sem félag til að berjast fyrir jafnrétti stúlkna í körfubolta svo þær njóti sömu tækifæra og drengir. Þetta er í raun stéttarbarátta því mikil stéttaskipting ríkir í penninga íþróttagreinum eins og körfubolta og fótbolta—ólíkt því sem þekkist í greinum þar sem kynin æfa saman, eins og frjálsum íþróttum og sundi. Þegar ég byrjaði að þjálfa lið dóttur minnar sá ég strax hversu lítil valdefling var til staðar fyrir stelpurnar sem voru fastar í lærðum vanmæti. Karlrembur sem báru ekki virðingu fyrir stelpum stóðu í vegi fyrir framförum, perrar sem leituðu inní þennan heim eins og rándýr á bráð og þroskasþjófar.“
Brynjari hefur orðið tíðrætt um að markmið félagsins sé að valdefla iðkendur og þá sérstaklega þær stúlkur í hópnum sem búi við bága félagslega stöðu:
„Ég hef lagt metnað minn í að vera raunveruleg feminísk fyrirmynd -hávaxinn, hvítur, miðaldra karl sem neitar að vera fórnarlamb. Stelpurnar sem ég hef þjálfað síðustu tíu ár neita að vera fórnarlömb eru nú tilbúnar að taka við baráttunni. Út með það gamla, inn með gellurnar!“
Brynjar rekur síðan í færslunni ástæður þess að ákveðið var að beina starfsemi Aþenu í Breiðholtið:
„Fyrir um þremur árum hófum við starfsemi í Efra-Breiðholti þegar ljóst varð að valdeflandi aðferðir okkar voru nákvæmlega það sem Breiðholtið þurfti á að halda.“
Hann er hins vegar ómyrkur í máli um þróun mála að undanförnu:
„Ástandið í hverfinu versnar stöðugt og börnin eru jaðarsett á kerfisbundinn hátt. Stelpurnar læra einnig að ef þú gagnrýnir kerfið verða valdhafar sárlega móðgaðir og gera allt til að kæfa þig með grófum árásum. Það er ljóst að reynt er að þagga niður í rödd Aþenu áður en hún verður of sterk.“
Brynjar rifjar upp að fyrir tveimur árum hafi félagið gert samning við Reykjavíkurborg um notkun á íþróttahúsinu í Austurbergi. Það hafi einna helst tekist fyrir tilstuðlan Eiríks Björns Björgvinssonar þáverandi sviðsstjóra hjá borginni en íþróttamál heyrðu undir hans svið. Allt hafi breyst hins vegar til verri vegar þegar Eiríkur var kosinn á þing fyrir Viðreisn og látið af störfum hjá borginni.
Í dag æfi 130 stelpur hjá Aþenu en borgin hafi komið því á framfæri að samningurinn um Austurberg verði ekki endurnýjaður þrátt fyrir að viðurkenna að starf félagsins sé til fyrirmyndar.
Brynjar segir að samningur borgarinnar og Aþenu renni raunar út í dag. Áhugaleysi borgarinnar geri félaginu ómögulegt að gera langtímaáætlanir um starfið. Það sé ótrúlegt að borgin grípi ekki þetta tækifæri og styðji dyggilega við starfsemi Aþenu.
Brynjar er að lokum afar gagnrýnin á Reykjavíkurborg og segir alveg ljóst að verði samningurinn ekki endurnýjaður á næstu dögum leggist starfsemi Aþenu af:
„Undanfarnar vikur höfum við átt fundi við sviðsstjóra og formann íþrótta- og menningarnefndar borgarinnar sem eru sárlega móðgaðir yfir því að litla félagið Aþena sé ósanngjarnt við að það sé verið að valta yfir sig. Þeim er sama um krakkana—þeir hugsa aðeins um sig sjálfa og pólitíkina sem þeir þjóna. Þetta eru stöðugar árásir á ört stækkandi rödd hverfisins: „Haldið kjafti eða þið hljótið verra af.“
„Þið heyrðuð það fyrst hér. Ef borginn endurnýjar ekki samninginn við Aþenu á næstu dögum, deyr félagið í næstu viku. Guð blessi Breiðholtið.“
Þegar þetta er skrifað hafa um 1800 manns ritað nöfn sín á undirskriftalistann, sem Brynjar minnist á, þar sem skorað er á Reykjavíkurborg að endurnýja samninginn við Aþenu um afnot af íþróttahúsinu í Austurbergi.