fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Fréttir

Snorri gagnrýnir Samtökin 78 – Vilja að Amtsbókasafnið slíti samstarfi við konu sem hefur gagnrýnt hefur transmálefni

Ritstjórn DV
Föstudaginn 30. maí 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, gagnrýnir framgöngu Samtakanna 78 gegn konu sem efnt hefur til ritdeilna á netinu um transmálefni.

Kristína Ösp Steinke stýrir félagasamtökunum Andrými á Akureyri. „Þau hafa haldið regluleg námskeið í margs konar hæfni og kunnáttu sem hjálpar fólki að reka heimili, í betri nýtni, sjálfbærni og að hlúa að almennri heilsu. Markmiðið er að sögn einnig að standa vörð um aldagamlar aðferðir í handverki sem eru að týnast meðal nýrra kynslóða. Um leið eru innflytjendur virkir þátttakendur í starfinu og öðlast þar með tengingu við samfélag heimamanna,“ segir Snorri um starfsemi samtakanna í grein sem hann birtir á Vísir.is.

Snorri upplýsir að starfsemi samtakanna hafi einkum farið fram á Amtsbókasafninu á Akureyri og hafa þar verið haldnir hinir ýmsu viðburðir og námskeið um þjóðlegt handverk. Á sama tíma hefur Kristín staðið í ritdeilum við Samtökin 78 um réttindi trans fólks.

Snorri birtir bréf sem Samtökin 78 sendu Akureyrarbæ, en það er svohljóðandi:

„Okkur hjá Samtökunum ’78 hefur borist ábending frá félaga í Samtökunum um að forsvarsfólk Andrými sem er í samstarfi við Amtsbókasafnið á Akureyri sýni af sér afar óviðeigandi ummæli um trans fólk og þá aðallega trans konur á opnum samfélagsmiðlum sínum. Nú er Akureyrarbær að setja á laggirnar í fyrsta sinn hinsegin hátíð núna í sumar og er því ólíkleg að slík orðræða samræmist stefnu opinberrar stofnunar í eigu Akureyrarbæjar.

Meðfylgjandi eru skjáskot af ýmsum ummælum forsvarsfólks Andrými. Er það krafa Samtakanna ’78 að forsvarsfólk Amtsbókasafnsins taki föstum tökum á þeirri stöðu sem upp er komin.“

Í kjölfarið fékk Kristína eftirfarandi póst frá bæjaryfirvöldum á  Akureyri:

„Okkur hafa borist ábendingar um að stofnendur og skipuleggjendur viðburða hjá Andrýminu sýni af sér hatursorðræðu og afar óviðeigandi ummæli um trans fólk á samfélagsmiðlum. Þetta stangast á við stefnu Amtsbókasafnsins og Akureyrarbæjar. Okkur langar að heyra hvernig þið bregðist við þessum ábendingum?“

Segir Snorri að málið sé til skoðunar og ekki hafi verið tekin ákvörðun um að meina Kristínu um aðgang að húsnæði bókasafnsins.

Ríkisvaldið megi ekki kæfa tjáningu almennings

Snorri segir skiljanlegt að Samtökin 78 lýsir yfir óánægju með skrif Kristínar á netinu, hins vegar hafi hún ekki hlotið dóm fyrir hatursorðræðu né eigi hún yfir höfði sér kæru þess efnis. Snorri segir:

„Að Samtökin 78 lýsi yfir óánægju með málflutninginn er vel skiljanlegt en spurningin er hvenær opinberum aðilum skal blandað í ritdeilur á netinu? Réttlætir umræða á samfélagsmiðlum kröfu samtakanna um að bæjaryfirvöld grípi til aðgerða gegn Kristínu, þegar ummæli hennar tengjast ekki að neinu leyti þeirri starfsemi sem hún hefur fengið að stunda í húsnæði bæjarins?“

Snorri lýsir yfir miklum efasemdum um að harkaleg tjáning um samfélagsmálefni sé lögmætur grundvellur þess að borgarar séu útilokaðir frá opinberri þjónustu eins og farið sé fram á í þessu tilviki. Hann segist hafa mikilvæga skyldu sem þingmaður til að verja rétt borgaranna til að tjá sig og vekur hann því athygli á málinu.

Grein Snorra má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Enginn vill Werner
Fréttir
Í gær

Kirkjurækinn fjölskyldufaðir ákærður fyrir að hafa ekið inn í mannfjölda í sigurgöngu Liverpool – Var í tilfinningalegu uppnámi í dómssal

Kirkjurækinn fjölskyldufaðir ákærður fyrir að hafa ekið inn í mannfjölda í sigurgöngu Liverpool – Var í tilfinningalegu uppnámi í dómssal
Fréttir
Í gær

Fundu kannabis í Haribo sælgæti – Heila fjölskyldu byrjaði að svima

Fundu kannabis í Haribo sælgæti – Heila fjölskyldu byrjaði að svima
Fréttir
Í gær

Brúðkaupsmynd versta barnaníðings sögunnar – Hávært ákall er um að eiginkonan svari einnig til saka

Brúðkaupsmynd versta barnaníðings sögunnar – Hávært ákall er um að eiginkonan svari einnig til saka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fór í tannaðgerð í Tyrklandi og sér eftir því – „Mér líður eins og allur heimurinn sé að glápa á mig“

Fór í tannaðgerð í Tyrklandi og sér eftir því – „Mér líður eins og allur heimurinn sé að glápa á mig“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lífið í uppnámi í miðri Íslandsferð – „Gæti ég komist í kast við lögin út af þessu?“

Lífið í uppnámi í miðri Íslandsferð – „Gæti ég komist í kast við lögin út af þessu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakar Krabbameinsfélagið um vanrækslu og mistök – Meinið hafði breiðst út um líkamann og olli ólýsanlegum þjáningum

Sakar Krabbameinsfélagið um vanrækslu og mistök – Meinið hafði breiðst út um líkamann og olli ólýsanlegum þjáningum