Bresk yfirvöld íhuga nú að taka upp efnavönun gegn kynferðisbrotamönnum og barnaníðingum. Meðal annars til þess að takast á við við offjölgun í breskum fangelsum.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Tilraunaverkefni er að hefjast í 20 fangelsum í Bretlandi þar sem kynferðisbrotamönnum verður boðin efnavönun. Það er að taka lyfið cyproterone til þess að lækka testósterónmagn líkamans niður í geldingarmörk.
Lyfið hefur verið notað í fleiri löndum Evrópu, svo sem í Svíþjóð, Danmörku, Frakklandi og Þýskalandi. Í öllum þessum löndum er meðferðin valkvæð en í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna hefur hún verið skylda.
Með þessari meðferð eigi að draga úr kynhvöt slíkra brotamanna og minnka áhættuna á því að þeir brjóti af sér aftur.
Shabana Mahmood, dómsmálaráðherra, er einnig sögð viljug til þess að ganga lengra með málið. Það er að gera efnavönun hluta af refsingu allra kynferðisbrotamanna, nauðgara og barnaníðinga.
„Í of langan tíma höfum við horft fram hjá hættunni sem stafar af kynferðisbrotamönnum og höfum talið lausnirnar of erfiðar eða ógerlegar. Shabana er ekki smeyk við að gera það sem þarf til þess að vernda almenning,“ sagði heimildarmaður Daily Star innan ráðuneytisins.