fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Myrti ólétta eiginkonu sína þegar hann komst að því að hún gengi með stúlku – „Ég er faðir þeirra núna. Ég skal passa þær“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 20. maí 2025 22:00

Drew Garnier framdi hið óhugsanlega. Myndir/Lögreglan í Delaware sýslu/Gofundme

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður að nafni Drew Garnier hefur verið dæmdur til 30 ára fangelsisvistar fyrir morð á barnshafandi eiginkonu sinni. Hann stakk hana og tvær dætur hennar þegar hann komst að því að hún gengi með stúlkubarn undir belti.

Tímaritið People greinir frá þessu.

Hinn 33 ára Drew myrti 29 ára gamla eiginkonu sína, Samantha, í Centerville í New York fylki í Bandaríkjunum. Þá stakk hann tvær dætur þeirra sem hann hafði gengið í föðurstað.

Fluttar með þyrlu

Lögregla kom að heimilinu þann 5. september í fyrra eftir að tilkynning barst um heimilisofbeldi. Þegar lögreglumenn komu á heimilið fundu þeir Samönthu og dæturnar, allar með mörg stungusár á líkamanum.

Reyndu þeir að stöðva blæðinguna þar til sjúkraflutningamenn komu á staðinn. Vegna alvarleika sáranna var kallað á þyrlu sem flutti þær á næsta spítala eins og segir í tilkynningu ríkislögreglunnar í New York.

Söfnun er hafin fyrir dætur Samönthu. Mynd/Gofundme

Samantha, sem var komin fimm mánuði á leið af þriðja barni sínu, var úrskurðuð látin skömmu eftir komuna á spítalann en dæturnar lifðu báðar af.

Fékk vægari refsingu

Drew játaði brot sitt fyrir dómi og samdi við saksóknara um vægari refsingu fyrir vikið. Að sögn Shawn J. Smith, saksóknara í málinu, er sú ástæða að dætur Samönthu lifðu af ástæðan fyrir því að Drew gat samið um vægari refsingu sem hljómar vissulega öfugsnúið og í raun ekki eins og það ætti að vera samkvæmt saksóknaranum. En hann vildi hlífa dætrunum við löngum réttarhöldum í málinu svo þær gætu einbeitt sér að því að ná bata.

Vildi son

Dæturnar búa nú hjá foreldrum Samönthu. „Ég er faðir þeirra núna. Ég skal passa þær,“ sagði faðir hennar í réttarhöldunum. Það var einmitt hann sem upplýsti réttinn um ástæðu þess að Drew myrti dóttur hans. Það er að hann hafi alltaf viljað eignast son. Þegar hann hafi frétt að þriðja barnið væri dóttir brást hann við með þessum hætti.

Má ekki tala við þær

Eins og áður segir hlaut Drew 30 ára fangelsisdóm fyrir einfalt morð. Eftir það taka við 15 ár af skilorðsbundinni afplánun. Þar að auki er honum bannað að hafa samband við dæturnar í 20 ár, eða til ársins 2056. Ef þær vilja þá geta þær fengið þessari síðastnefndu kvöð aflétt.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir manni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald