fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Fréttir

Dagur hæðist að Morgunblaðinu og rithönd Davíðs Oddssonar – „Gmmtnnnnm“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 19. mars 2025 10:12

Dagur hæðist að rithönd Davíðs.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar, fagnar að Morgunblaðið hafi „rofið þögnina“ sem ríkt hafi um rithendur ráðamanna.

„Blaðið hefur greinilega ákveðið að byrja á okkar ágæta forseta Höllu Tómasdóttur. Og finnst hún alls ekki skrifa vel og vill að hún breyti undirritun sinni. Annan daginn í röð er frétt um þetta í blaði dagsins,“ segir Dagur í færslu á samfélagsmiðlum.

Mikil hneykslun

Er hann að vísa til frétta Morgunblaðsins um að Halla hafi ekki notað fullt nafn sitt við undirritun á 75 ára afmælistónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Heldur hafi hún notað „Halla Tomas.“

Sjá einnig:

Guðrún Kvaran gagnrýnir Höllu forseta:„Þá á hún að skrifa und­ir „Halla Tóm­as­dótt­ir“ og ekk­ert annað“

Svaraði Halla því að hún hefði notað þessa undirskrift áratugum saman. Ræddi Morgunblaðið einnig við Guðrúnu Kvaran prófessor emeritus í íslensku, sem var yfir sig hneyksluð. „Það er ekk­ert betra. Hún var mikið í er­lend­um sam­skipt­um og þá var kannski erfitt að hafa „dótt­ir“. En hún býr á Íslandi og er að skrifa und­ir ís­lenskt plagg. Þá á hún að skrifa und­ir „Halla Tóm­as­dótt­ir“ og ekk­ert annað,“ sagði Guðrún við Morgunblaðið.

Má þetta?

Dagur segist vona og gerir eiginlega kröfu um að þetta verði upphafið að greinaflokki um þessi efni.

„Ég hef lengi þráð að fá skýringar á því hvers vegna ritstjóri blaðsins skrifar alltaf undir með einhverju sem líkist “Gmmtnnnnm” en alls ekki Davið Odsson einsog víða má sjá í opinberum skjölum,“ segir hann og birtir mynd af rithönd Davíðs. „Hér er dæmi af fyrsta Icesave-samningnum sem ritstjórinn skrifaði undir með Árna Matthiesen þáverandi fjármálaráðherra haustið 2008. MÁ ÞETTA BARA????“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“
Fréttir
Í gær

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“