fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 16. desember 2025 11:15

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kílóverð á úrbeinuðu hangilæri og hamborgarhrygg með beini var lægst í Prís samkvæmt úttekt verðlagseftirlitsins á jólamat i síðustu viku. Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á 61 algengri jólavöru í 8 verslunum. Beinlaus hamborgarhryggur og hangilæri með beini fengust ekki í Prís, en aðeins munaði einni krónu á lægsta kílóverði milli Bónus og Krónunnar, Bónus í vil.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ.

Í henni segir að nokkur munur geti verið á verði á kjötvöru en einnig á vöruúrvali milli verslana. Bent er á það að kílóverð á hamborgarhrygg hafi kostað allt frá 1.698 kr. í Prís upp í 2.899 kr. í Hagkaupum.

„Vinsælar vörur eru ekki endilega fáanlegar í öllum verslunum og verðbreytingar geta verið tíðar á þessum árstíma. Neytendum er því bent á að hægt sé að nota Nappið til samanburðar eða vöruleit á Verdlagseftirlit.is þar sem öll gögn og nýjustu verð eru aðgengileg,“ segir í tilkynningunni.

Verðlagseftirlit ASÍ segir að verðmunur milli Bónus og Krónunnar sé gjarnan ein króna, eins og verðlagseftirlitið hefur áður bent á, en verðmunur milli Bónus og Prís getur verið meiri.

„Frá opnun Prís í ágúst í fyrra hefur Bónus verið að meðaltali 5% dýrara en Prís þegar allar vörur sem finnast í báðum verslunum eru bornar saman. Sá verðmunur hefur verið stöðugur frá opnun Prís og sést einnig í jólakjötinu. Ódýrasti hamborgarhryggurinn í Bónus, Bónus hryggur með beini er t.d. 5,9% dýrari en Prís hamborgarhryggur. Prís hangilæri er hins vegar 1,8% ódýrara en Fjalla hangilæri, sem er ódýrasta hangilærið í Bónus. Í öllum tilfellum er miðað við kílóverð en einnig ber að hafa í huga að ekki er alltaf um sömu vörur að ræða og þá borið saman lægsta kílóverð í verslunum,“ segir í tilkynningu ASÍ.

Ódýrasti hamborgarhryggurinn á 1.698 krónur

ASÍ segir í tilkynningu sinni að lægsta kílóverð hamborgarhryggs með beini hafi verið hjá Prís (Prís hamborgarhryggur) – 1.698 kr/kg. Ódýrustu valkostir í Bónus og Krónunni séu um 100 krónum dýrari, en þar er sömuleiðis um sérmerkta vöru að ræða.

„Hamborgarhryggur Kjarnafæðis var ódýrastur í Fjarðarkaupum (2.393 kr/kg), en fæst sömuleiðis í Hagkaupum á 2.579 kr/kg. SS hamborgarhryggur er fáanlegur í fjórum verslunum, ódýrastur í Bónus (2.398 kr/kg), en dýrastur í Fjarðarkaupum (2.650 kr/kg). Sömu verslanir bjóða einnig upp á KEA hamborgarhrygg frá 2.689 kr/kg í Bónus til 2.898 kr/kg í Fjarðarkaupum. Þess utan fást umræddir hryggir í Krónunni og Hagkaupum.

Í meðfylgjandi töflu má sjá yfirlit yfir verð á jólakjöti:

Í tilkynningu ASÍ kemur fram að Ali hamborgarhryggur sé fáanlegur í fimm verslunum og er ódýrasta kílóverð á hryggnum 2.489 kr. í Prís. Einungis munaði einni krónu á verði í Bónus (2.598 kr/kg) og Krónunni (2.599 kr/kg) á meðan verðið var 2.698 kr/kg í Fjarðarkaupum. Dýrastur var Ali hryggurinn í Hagkaupum, 2.899 kr/kg.


Þá segir að ódýrasta kílóverðið á úrbeinuðum hamborgarhrygg hafi verið í Krónunni, 2.330 kr/kg samanborið við 2.339 kr/kg í Bónus. „Úrbeinaður hamborgarhryggur frá SS var fáanlegur á flestum stöðum, alls í 4 verslunum þar sem lægsta verðið var í Bónus á 2.689 kr/kg. Í Krónunni var hann einni krónu dýrari en fékkst einnig í Hagkaup á 2.999 kr/kg og í Fjarðarkaupum á 3.058 kr/kg.“

Hangikjötið ódýrast í Prís

ASÍ segir að lægsta verð á úrbeinuðu hangilæri hafi verið í Prís, 4.899 kr/kg en ódýrasta kílóverð í Bónus var á 4.989 kr/kg og 4.999 kr/kg í Krónunni. KEA úrbeinað hangilæri mátti finna í fimm verslunum, það var ódýrast í Bónus á 7.179 kr/kg en verðið í Krónunni fyrir sömu vöru var eins og algengt er, einni krónu hærra en hæst var það í Fjarðarkaupum, 7.998 kr/kg.


„Kílóverð á hangilæri með beini er nokkuð lægra en á beinlausu. Sé ætlunin að finna ódýrasta kílóverð þá var kofareykta hangilærið frá Kjarnafæði lægst 3.598 kr/kg í Bónus. Ódýrasta lærið í Krónunni var frá KEA og kostaði 3.599 kr/kg en í Fjarðarkaupum var hangilæri frá Kjarnafæði á 3.890 kr/kg. Birkireykt hangilæri frá SS var fáanlegt í flestum verslunum. Lægsta verðið var í Bónus, 4.098 kr/kg en það var einnig fáanlegt á Krónunni (4.099 kr/kg), Fjarðarkaupum (4.159 kr/kg) og Hagkaupum (4.299 kr/kg),“ segir í tilkynningu verðlagseftirlits ASÍ.

Þá segir að léttreyktur lambahryggur hafi verið ódýrastur í Prís, hvort sem er frá KEA eða SS. Hálfur léttreyktur hryggur frá KEA fékkst í alls 7 verslunum og gat verðmunur numið allt að 19% þar sem kílóverðið var frá 4.875 kr/kg í Prís upp í 5.799 kr/kg í Hagkaup.

Lítill verðmunur á kalkúni

Fyrir þá sem ætla ekki að bjóða upp á reyktar og saltaðar kjötvörur er ýmiss annar hátíðarmatur á boðstólnum. Kalkúnn frá Reykjabúinu var fáanlegur í sex verslunum en lægsta kílóverðið í könnuninni var í Prís, 2.298 kr/kg. Lítill verðmunur var á kalkún milli verslana og var hann fáanlegur á undir 2.400 kr/kg í Bónus, Krónunni og Fjarðarkaupum. Hæstu verðin voru í Nettó og Hagkaupum þar sem hann kostaði 2.499 kr/kg.

Þá segir að lokum að ódýrasta kílóverð á nautalundum hafi verið í Prís, 5.960 kr. og í Bónus á 5.998 kr. Í Krónunni var verðið 6.198 kr., 6.199 kr. í Nettó og 6.999 kr. í Kjörbúðinni. Töluverður munur getur verið á verði á nautalundum, bæði milli verslana og innan verslana sem skýrist af ólíkum vörum og ólíkum uppruna, að sögn ASÍ. Í Bónus mátti einnig finna nautalundir á allt að 8.998 kr/kg og í Krónunni á allt að 9.099 kr/kg.

Ódýrustu andabringuna mátti finna í Nettó, Barbary andabringa á 3.298kr/kg, en þar var hún á afslætti þegar Verðlagseftirlit ASÍ fór á vettvang. Næstlægsta kílóverðið fannst á sömu vöru í Prís, 21% dýrari. Verðið í Prís var þó 5% lægra en tilgreint listaverð á vörunni í Nettó. Nokkru getur munað á lægsta kílóverði á andabringum. Í Nettó, Prís, Bónus og Krónunni mátti finna andabringur á undir 4 þúsund kr. á kílóið en verðið var hærra í Fjarðarkaupum (4.794 kr/kg) og Hagkaupum þar sem það var lægst á 5.396 kr/kg.

Töluverðar hækkanir á jólakjöti milli ára

Líkt og verðlagseftirlitið fjallaði um nýlega hefur verð á kjötvöru hækkað nokkuð milli ára. Að jafnaði hefur verð á kjötvöru hækkað um 6,6% og á lambakjöti um 8,6% milli ára samkvæmt mælingum verðlagseftirlitsins samanborið við 4% hækkun á dagvöru milli ára. Dæmi um hækkanir á algengum kjötvörum frá síðustu jólum:

• Ali hamborgarhryggur með beini hækkar um 4% í Bónus (2.498 -> 2.598kr) og Krónunni (2.499 -> 2.599kr)
• SS birkireykt hangilæri hækkar um 5,9% í Bónus (3.869->4.098kr) og um 5,4% í Krónunni (3.889 -> 4.099kr)
• KEA léttreyktur lambahryggur hækkar um 5,5% í Bónus (4.879 -> 5.149kr) og Krónunni (4.880 -> 5.150kr)
• Frosnar ungnautalundir frá Íslandsnauti hækka um 6,7% í Bónus (8.998 -> 9.598kr)
• Gourmet kalkúnabringa í Krónunni hækkar um 21% (2.395 -> 2.899kr) og Ísfugls kalkúnahakk hækkar um 16% í Bónus (722 -> 839kr) og Krónunni (727 -> 840kr)

Fyrirvari

ASÍ tekur fram að könnunin hafi verið gerð í síðustu viku og voru verð á jólakjötvöru borin saman í Bónus, Krónunni, Prís, Nettó, Fjarðarkaupum, Hagkaupum, Kjörbúðinni og Extra.

„Í verðsamanburði er miðað við hilluverð sem neytandi hefur upplýsingar um í versluninni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/tilboðsverð af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð. Tilboð eru víða í matvöruverslunum nú fyrir hátíðarnar og verðbreytingar tíðar og geta neytendur nálgast nýjustu verð verðlagseftirlitsins í Nappinu eða í vöruleit á verdlagseftirlit.is
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“