
Í Lögbirtingablaðinu hefur verið birt ákæra á hendur tveimur mönnum með rúmensk nöfn en þeir eru ákærðir fyrir stórtækan þjófnað á verkstæði í sveitarfélaginu Hornafirði. Eru mennirnir sagðir hafa stolið meðal annars verkfærum, miklu magni af koparvír og einnig felgum, er verðmæti þýfisins var yfir ein milljón króna.
Mennirnir eru báðir með íslenskar kennitölur. Annar er á fertugsaldri og skráður til heimilis í Reykjavík en hinn á þrítugsaldri og skráður til heimilis á óþekktu heimilisfangi í Bretlandi.
Samkvæmt ákærunni brutust mennirnir inn á verkstæðið í september 2023 og stálu þaðan eftirfarandi munum; Kapalpressu af gerðinni Milwaukee í svartri tösku að verðmæti 430.000 krónur, klemmum í kapalpressu að verðmæti 50.000 krónur, höggborvél ásamt fylgihlutum í grænblárri tösku af gerðinni Makita að verðmæti 200.000 krónur, 12V hleðsluborvél af gerðinni Milwaukee að verðmæti 50.000 krónur, DeWalt slípirokk að verðmæti 50.000 krónur, afeinangrunarvél af gerðinni Milwaukee að óþekktu verðmæti, ásamt koparvírum að verðmæti 507.944 krónur, koparrörum, koparskinnum, pressutengjum, rafmagnsköplum, afklippum, koparstöng og öðrum smáhlutum og verkfærum að óþekktu heildarverðmæti, og fyrir að hafa á sama tíma og á sama stað brotist inn í bifreið sem stóð utandyra við verkstæðið og stolið þaðan fjórum felgum undir bifreið af gerðinni Volvo 740 og fjórum sex gata jeppa felgum að óþekktu heildarverðmæti.
Þess er krafist að mennirnir verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar en þar að auki krefur fyrirtækið sem rekur verkstæðið þá um skaðabætur auk dráttarvaxta. Málið verður tekið fyrir við Héraðsdóm Austurlands í janúar á komandi ári. Mæti mennirnir ekki verður það metið sem svo að þeir játi þann þjófnað sem þeir eru ákærðir fyrir.