Um 40 prósent Eflingarfélaga búa við skort á efnislegum og félagslegum gæðum, með öðrum orðum lifa þau við fátækt. Staða Eflingarfélaga er verulega mikið verri en staða félagsfólks í öðrum aðildarfélögum ASÍ og BSRB, en um 20 prósent þeirra búa við viðlíka skort.
Þetta kemur fram í tilkynningu Eflingar sem byggir á niðurstöðum skýrslu Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, um stöðu launafólks á Íslandi. NIðurstöðurnar sýna skýrt að fjárhagsstaða Eflingarfélaga er almennt mun lakari en annars félagsfólks stéttarfélaganna.
Alls eiga rúm 45 prósent Eflingarfélaga erfitt með að ná endum saman, og þar af eiga tæp 8 prósent mjög erfitt með það. Til samanburðar eiga 28 prósent félagsfólks annarra félaga innan ASÍ og BSRB erfitt meða að ná endum saman, þar af eru 3,5 prósent sem eiga mjög erfitt með það.
Aðeins rúm 40 prósent félagsfólks Eflingar telja sig geta mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum, án þess að þurfa að stofna til skulda. Annað launafólk telur sig mun betur sett hvað þetta varðar, en tæplega 64 prósent þess telja að þau geti mætt slíkum útgjöldum.
Fjórðungur hefur ekki efni á staðgóðri máltíð annan hvern dag
Sé litið til þess sem flokkað er efnislegur skortur í heimilisrekstri kemur fram mjög skýr munur á stöðu Eflingarfélaga og félaga annarra stéttarfélaga, Eflingarfélögum mjög í óhag.
Tæpur fimmtungur Eflingarfélaga á ekki tvö skópör
Þegar kemur að því sem flokkað er sem efnislegur skortur einstaklinga lagast staðan síst varðandi mun á stöðu Eflingarfélaga samanborið við félagsmenn í öðrum stéttarfélögum innan ASÍ og BSRB.
Yfir sjö þúsund Eflingarfélaga líða verulegan skort
Við mat á því hvort fólk búi við skort á efnis- og félagslegum gæðum er dregið saman í hversu mörgum þáttum fólk líður skort. Búi fólk við skort í 5-6 liðum, af þrettán, telst það líða almennan skort en séu liðirnir 7 eða fleiri er um verulegan skort að ræða.
Í ljósi framangreinds er ljóst að staða Eflingarfélaga í íslensku samfélagi er bæði alvarleg og verulega mikið verri en annars launafólks. Það er engin leið til að sykurhúða það neitt, niðurstöður könnunar Vörðu sýna að um 13.000 Eflingarfélagar eru fastir í fátæktargildru og skortir bæði efnisleg og félagsleg gæði. Þar af líða ríflega 7.000 verulegan skort. Þá er staða um það bil 5.000 annarra Eflingarfélaga brothætt og lítið þarf út af að bera til að þeir sogist einnig niður í sömu fátæktargildruna.