fbpx
Föstudagur 19.desember 2025
Fréttir

Félagið Arnarland sé með Garðabæ í vasanum – „Það er verið að setja nýja Kringlu á pinkulítið svæði“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 13. janúar 2025 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Hólmar Jóhannesson, segir fyrirtækið Arnarland sem hyggur á uppbyggingu hverfis í svokölluðum Arnarneshálsi, með Garðabæ í vasanum varðandi skipulag á staðnum. Í uppsiglingu sé mikið skipulagsklúður með aukinni umferð og skertu útsýni fyrir íbúa hverfisins og nágranna í Garðabæ og Kópavogi.

Sigurður er íbúi í Garðabæ sem hefur barist gegn áætlunum Garðabæjar í Arnarneshálsi, en þar á að rísa nýtt hverfi Arnarland þar sem samnefnt félag hyggst reisa um 500 íbúðir og verslun og þjónustu, með áherslu á heilsu. Hann ræddi málið í þættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Verður umferðarstappa alla daga

Sagði Sigurður að það væri einkum hið mikla byggingarmagn verslunar og þjónustu sem nágrannarnir hefðu áhyggjur af. „Það jafnast á við Kringluna. Það er verið að setja nýja Kringlu á pinkulítið svæði. Plús einhverjar fimm hundruð íbúðir,“ sagði hann.

Ljóst væri að aðgengismálin yrðu mikið skipulagsklúður. Umferðin sé nú þegar mikil á þessu svæði. „Þetta mun alltaf verða klúður. Það verða stöppur þarna alla daga,“ sagði hann. Búið væri að teikna borgarlínuna þarna inn á þrátt fyrir að ekki liggi fyrir hvar hún muni liggja sunnan Hamraborgar.

Sjá einnig:

Reiði út af nýju heilsuhverfi í Garðabæ – „Garðabær stelur Kópavoginum frá Kópavogsbúum“

„Það myndi engin heilvita manneskja setja þetta svona upp,“ sagði hann um Garðabæ. Garðabær væri í vasanum á þessu félagi Arnarlandi sem íbúum sýnist vera að skipuleggja hverfið. Garðabær, sem eigi að hafa skipulagsvaldið, sé aðeins „frontur.“

Í Garðabæ séu aðallega lágreist hús og mikið af grænum svæðum en þarna eigi að byggja á hverjum einasta fermetra, allt að þrjátíu metra turna sem muni loka á útsýni í hverfinu og hjá íbúum í Smáranum í Kópavogi. Auk þess að varpa skugga á Arnarnesið í Garðabæ.

Drógu skipulag til baka og gerðu nýtt

DV hefur fjallað um málefni Arnarlands síðan í fyrra. En mikil ólga hefur verið í nálægum hverfum og undirskriftum hefur verið safnað gegn áætlununum.

Skipulag var kynnt í sumar og söfnuðust hundruð athugasemda á skömmum tíma. Í stað þess að svara þessum athugasemdum dró Garðabær skipulagið til baka, lækkaði byggingar lítillega og kynnti nýtt skipulag. Frestur til að gera athugasemdir við það skipulag rennur út 20. janúar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Age Hareide er látinn
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Þórhallur hvetur fólk til að láta áfengið eiga sig um jólin og gera þetta í staðinn

Þórhallur hvetur fólk til að láta áfengið eiga sig um jólin og gera þetta í staðinn
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Bankabók hetjunnar á Bondi Beach stækkar og stækkar

Bankabók hetjunnar á Bondi Beach stækkar og stækkar