fbpx
Þriðjudagur 19.ágúst 2025
Fréttir

Heiðrún segir fólki að anda rólega: „Merkilegt að sjá hve mörgu hefur verið haldið fram í fjölmiðlum sem stenst ekki skoðun“

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 19. ágúst 2025 09:00

Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS. Mynd/Hringbraut

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er merkilegt að sjá hve mörgu hefur verið haldið fram í fjölmiðlum sem stenst ekki skoðun og passar engan veginn við vísindi fiskifræðinnar,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS.

Heiðrún Lind skrifar grein á Vísi, undir fyrirsögninni Öndum rólega, þar sem hún fjallar um strokulaxa sem fundust í Haukadalsá á dögunum. Kallar hún eftir meiri yfirvegun í umræðuna.

„Síðustu daga hafa býsna margar fréttir borist af „hamförum“ í Haukadalsá. Þeim hefur reyndar fækkað eftir að í ljós kom að megnið af löxunum dularfullu virðast vera hnúðlaxar,“ segir Heiðrún Lind og bætir við að það sé vissulega rétt að laxar, sem bera einkenni eldislax, hafi fundist í Haukadalsá. Áréttar hún að SFS taki slík mál alltaf alvarlega en nauðsynlegt sé að halda ró og byggja umræðuna á staðreyndum.

Ekki hægt að fullyrða

„Sjónræn greining getur gefið sterkar vísbendingar um uppruna laxfiska, en ekki er hægt að fullyrða um eldisuppruna nema með erfðagreiningu. Ísland er í þeirri einstöku stöðu að geta rakið uppruna hvers einasta eldisfisks sem settur er í sjó til framleiðanda, og niðurstöður um fjölda og uppruna viðkomandi laxfiska munu liggja fyrir þegar sýni hafa verið rannsökuð,” segir hún.

Heiðrún segir einnig mikilvægt að minna á að ganga eldislaxa í ár jafngildi ekki sjálfkrafa erfðablöndun við villta laxastofna. Um þetta virðist gæta misskilnings, að sögn Heiðrúnar.

„Rannsóknir hafa sýnt að eldislax hefur takmarkaða æxlunarhæfni og því verður erfðablöndun í raun mun minni en einfalt hlutfall eldislaxa í laxveiðiá gæti gefið til kynna,“ segir hún. Hún segir einnig ástæðu til að árétta að á Íslandi sé gengið lengra en í nokkru öðru landi til verndar villtum laxastofnum.

„Ólíkt Noregi til dæmis er sjókvíaeldi hér aðeins heimilt fjarri þekktum laxveiðiám. Hæst ber þó hið svokallaða áhættumat erfðablöndunar, en með því er Hafrannsóknastofnun falið að meta leyfilegt hámarksmagn frjórra eldisfiska sem heimilt er að ala hér við land án þess að villtum laxastofnum stafi hætta af. Í matinu er beinlínis gert ráð fyrir að strok muni eiga sér stað í ákveðnu hlutfalli við leyfilegt framleiðslumagn, með þá meginforsendu til grundvallar að villtur íslenskur lax hefur aðlagast íslenskri náttúru um árhundruð og hefur getu til að standa af sér ágang eldislaxa ef strok eru innan ákveðinna marka.“

Tal um náttúruhamfarir þjónar málinu síst

Heiðrún segir að þótt áhættumat Hafró geri ráð fyrir að tiltekið hlutfall eldislaxa kunni að rata í ár sé það engu að síður sjálfstætt markmið allra sem starfa við fiskeldi á Íslandi að koma í veg fyrir strok með öllu.

„Ábyrgð okkar felst í því að halda fjölda strokufiska í algjöru lágmarki, enda er allra hagur að uppbygging fiskeldis fari ekki fram á kostnað villtra laxastofna. Við leggjum metnað í að draga úr þessari áhættu og vinnum áfram með stjórnvöldum og vísindasamfélaginu að úrbótum og vernd villta laxins. Til marks um það var árið 2023 gripið til víðtækra aðgerða í kjölfar umfangsmikillar göngu eldislaxa í ár, meðal annars með auknu eftirliti með kynþroska fiski í eldi og auknu neðansjávareftirliti.“

Heiðrún segir að SFS sé alltaf tilbúið til viðræðna um það sem betur má fara og geri sér grein fyrir að mistök geti orðið. Mikilvægt sé að læra af reynslunni og byggja upp traust með opnum samskiptum.

„Það sem þjónar málinu síst er að tala um náttúruhamfarir áður en staðreyndir liggja fyrir. Skynsamlegast er að leyfa vísindunum að leiða umræðuna og vinna saman að áframhaldandi vernd villtra íslenskra laxastofna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ræða endurkomu Jóns Ásgeirs sem risi á matvörumarkaðinum – „Hann teiknaði upp líkan“

Ræða endurkomu Jóns Ásgeirs sem risi á matvörumarkaðinum – „Hann teiknaði upp líkan“
Fréttir
Í gær

Gagnrýnir aðgerðaleysi Ferðamálastofu vegna bílastæðavitleysunnar

Gagnrýnir aðgerðaleysi Ferðamálastofu vegna bílastæðavitleysunnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eze fer til Tottenham

Eze fer til Tottenham
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Ég mun aldrei gleyma heiftinni sem skein úr andliti hins óþekkta fulltrúa ferðaþjónustunnar“

„Ég mun aldrei gleyma heiftinni sem skein úr andliti hins óþekkta fulltrúa ferðaþjónustunnar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Meintur níðingur á Múlaborg vel liðinn og sagður blíður við börn

Meintur níðingur á Múlaborg vel liðinn og sagður blíður við börn
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Síminn sektaður fyrir ólöglegar auglýsingar

Síminn sektaður fyrir ólöglegar auglýsingar