fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025
Fréttir

Tókust á við áskoranir þegar versta veðrið gekk yfir Vestmannaeyjar í nótt – Hætt við brennuna af öryggisástæðum

Ritstjórn DV
Laugardaginn 2. ágúst 2025 08:51

Frá setningu Þjóðhátíðar árið 2019. Mynd: Óskar Friðriksson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Slæmt veður setti strik í reikninginn við þjóðhátíðarhald í Vestmannaeyjum í nótt og var hætt viðað kveikja í brennunni á Fjósakletti sem vanalega er tendruð á föstudagskvöldi. Veðrið fór að ganga niður á þriðja tímanum í nótt og skipuleggjendur vona að það versta sé afstaðið. Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá þjóðhátíðarnefnd:
„Skipuleggjendur og viðbragðsaðilar á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum stóðu frammi fyrir þó nokkrum áskorunum í nótt þegar versta veðrið gekk yfir eyjarnar. Þjóðhátíðarnefnd tók þá ákvörðun rétt fyrir miðnætti að hætta við að kveikja í brennunni á Fjósakletti, sem venjulega er tendruð á miðnætti á föstudagskvöldi. Veitinga- og tónlistartjöldin í fremri hluta Herjólfsdals voru rýmd til að tryggja öryggi, og stærsta danstjaldið var fellt til að forða því frá foki. Dagskráin á stóra sviðinu hélt áfram í gegnum nóttina. 

Hættu að rukka í strætó til að tryggja öryggi

Fyrr um kvöldið hafði Þjóðhátíðarnefnd ákveðið að virkja viðbragðsáætlun og opna Herjólfshöllina, sem fjölmargir gestir nýttu sér. Einnig var gjaldtöku í samgöngukerfi hátíðarinnar hætt á tímabili til að tryggja að sem flestir kæmust til síns heima eða í Herjólfshöllina á sem hraðastan og öruggastan hátt. 

Veðrið byrjaði að ganga niður uppúr tvö 

Á milli tvö og þrjú eftir miðnætti fór veðrið að ganga niður, og skipuleggjendur vænta þess að það versta sé nú yfirstaðið. „Við erum hér með einvalalið í öllum stöðum sem tókst á við allar áskoranir af mikilli yfirvegun og dugnaði. Þá vil ég líka þakka öllum gestunum okkar fyrir hversu vel þau hafa staðið sig og ekki má gleyma öllu listafólkinu sem skemmti gestunum okkar af fagmennsku þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Við höldum svo bara áfram inn í helgina með ábyrgri bjartsýni,“ segir Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

NTÍ skammar sveitarfélög fyrir að skipuleggja hús á hættusvæðum – Tjón á nýlegum byggingum aukist

NTÍ skammar sveitarfélög fyrir að skipuleggja hús á hættusvæðum – Tjón á nýlegum byggingum aukist
Fréttir
Í gær

„Meiri lífsgæði og betri heilsa – tækifærin leynast alls staðar“

„Meiri lífsgæði og betri heilsa – tækifærin leynast alls staðar“
Fréttir
Í gær

Andri bendir á hatrið sem Charlie Kirk boðaði – „Hugnaðist til dæmis ekki að sitja í flugvél með svörtum flugmanni“

Andri bendir á hatrið sem Charlie Kirk boðaði – „Hugnaðist til dæmis ekki að sitja í flugvél með svörtum flugmanni“
Fréttir
Í gær

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“
Fréttir
Í gær

Furðar sig á því að geta fengið íslenskt vodka á lægra verði í Bandaríkjunum en í Fríhöfninni

Furðar sig á því að geta fengið íslenskt vodka á lægra verði í Bandaríkjunum en í Fríhöfninni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Ég er með fullt af skoðunum sem stangast á við skoðanir þessa gaurs“

„Ég er með fullt af skoðunum sem stangast á við skoðanir þessa gaurs“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skagfirðingar óttast að tapa á sparnaðaráformum Ingu

Skagfirðingar óttast að tapa á sparnaðaráformum Ingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið