fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Sérfræðingur telur að höfundarréttarlög hafi verið brotin með múmínlundinum – „Mér finnst það mjög líklegt já“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 28. júní 2025 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sérfræðingur í hugverkarétti telur afar líklegt að Skógræktarfélag Eyjafjarðar hafi brotið gegn höfundarrétti með því að útbúa sérstakan múmínlund í Kjarnaskógi við Akureyri.

Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Frétt DV um málið á föstudag hefur vakið mikla athygli:

Sjá einnig: Rétthafar æfir yfir Múmínlundinum í Kjarnaskógi – „Þetta er blygðunarlaust höfundarréttarbrot“

Þar segir að sérstakur Múmínlundur sem útbúinn hefur verið í Kjarnaskógi við Akureyri af hálfu Skógræktarfélags Eyjafjarðar með styrk frá Akureyrarbæ sé höfundarréttarbrot að mati rétthafa Múmínálfanna sem hyggjast lögsækja Skógræktarfélag Eyjafjarðar.

Í svari frá forstjóra rétthafa Múmínálfanna, finnska fyrirtækisins Moomin Characters, við fyrirspurn DV, segir:

„Þetta er því miður blygðunarlaust höfundarréttarbrot gagnvart Moomin Characters. Lögmenn okkar eru í þessum skrifuðu orðum að undirbúa lögsókn á hendur hinum brotlegu.“

Ekki sama að leika sér með múmíndót og setja það upp opinberlega

„Þú mátt leika þér með leikföngin og þú mátt bjóða í kaffiboð með múmínbollanum sem þú átt en um leið og þú ert farinn að gera eitthvað opinberlega fyrir almenning, mögulega í fjárhagslegum tilgangi, þá ertu komin á hættusvæði,“ segir Ásdís Magnúsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í hugverkarétti, í viðtali við RÚV.

Ásdís telur líklegt að mat Moomin Characters, um að hér eigi sér stað blygðunarlaust höfundarréttarbrot, sé rétt:

„Mér finnst það mjög líklegt já. Það er einhver ástæða fyrir því þegar þú setur upp nýjan skemmtilegan garð í skógi fyrir börn að þú ákveður akkúrat að gera þetta ævintýri. Það er af því að þetta ævintýri er mjög heillandi, mjög vinsælt og það er skapað af ákveðinni persónu sem á þá réttinn til þess ævintýris.“

Hún bendir einnig á að notkun á Múmínálfunum snúist einnig um sæmdarrétt:

„Þú vilt svolítið hafa stjórn á hvernig verkin þín eru notuð. Það er ekkert að ástæðulausu að ævintýri eins og Múmínálfarnir er jafnt vinsælt og raun ber vitni. Þeim er mjög annt um þetta og þeim er ekki sama hvernig tilvísanir í ævintýrið eru notaðar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“