fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Rétthafar æfir yfir Múmínlundinum í Kjarnaskógi – „Þetta er blygðunarlaust höfundarréttarbrot“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 27. júní 2025 14:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sérstakur Múmínlundur sem útbúinn hefur verið í Kjarnaskógi við Akureyri af hálfu Skógræktarfélags Eyjafjarðar með styrk frá Akureyrarbæ er höfundarréttarbrot að mati rétthafa Múmínálfanna sem hyggjast lögsækja Skógræktarfélag Eyjafjarðar.

Hafist var handa við verkefnið fyrr í mánuðinum og reistur blár Múmínturn í skóginum og síðan tekið til við að útbúa sérstakan Múmínskóg í síberíulerkilundinum á Kjarnavelli. Til stendur að setja upp fleiri leiktæki á borð við bláa turninn. Í tilkynningu frá Skógræktarfélagi Akureyrar um málið frá 15. júní segir:

„Á einungis einni viku reistu þeir Múmínkastalann fyrir Míu sem er afar vel að verki staðið en verkinu er þó hvergi nærri lokið, öryggissvæði og umgjörð öll er næsta mál á dagskrá. Undirbúningur hefur staðið um hríð. Starfsfólk okkar, verktakar og nemendur Menntaskóla Akureyrar hafa komið þar að málum og gaman að sjá gamla, kræklótta síberíulerkilundinn á Kjarnavelli öðlast nýtt líf sem Múmínskógur, sjálfstæð eining innan Kjarnaskógar sem hýsa mun fjölskyldumeðlimi Míu auk annara sögupersóna þess ágæta ævintýris eins og Snorksins og Snorksstelpunnar, Morrans, Hemúlsins, Hattífattanna og svo framvegis.“

Sjá einnig: Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi

DV fékk spurnir af því í gær að rétthafa Múmínálfanna, finnska fyrirtækinu Moomin Characthers Oy Ltd, hefði verið gert viðvart um framtakið og starfsmaður staðfest að ekki hefði verið sótt um leyfi fyrir Múmínlundinum í Kjarnaskógi.

„Ég kem svo sem af fjöllum“

DV hafði í gær samband við Ingólf Jóhannsson, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Akureyrar, í gær og spurði hann út í málið. Hann undraðist að einhver teldi að sækja þyrfti um leyfi fyrir framtak af þessu tagi. „Ég kem svo sem af fjöllum hvað þetta varðar,“ sagði Ingólfur og vafðist honum tunga um tönn um stund. Hann sagði síðan:

„En fyrstu viðbrögð eru að þetta eru leiktæki sem erlent fyrirtæki framleiðir og selur og þessi leiktæki, sem eru CE-vottuð, eru í notkun út um öll Norðurlönd, þar sem fólk er að setja þetta upp. Við höfum kannski haft í huga að gera þessu hærra undir höfði og auglýsa þetta sem Múmíngarð. Ég hef í sjálfu sér ekki heimildir fyrir því að það sé löglegt og leyfilegt. Varðandi leiksvæðið sem slíkt þá á ég erfitt með að trúa því að þetta sé ólöglegt.“

Ingólfur sagði síðan eftir nokkra umhugsun að hann væri sannfærður um að þetta væri ekki höfundarréttarbrot: „Algjörlega. Ekki brot. Það þarf þá að skanna öll Norðurlöndin og rífa niður turna. Það er hægt að kaupa þessi leiktæki á netinu og það væri þá framleiðandinn sem væri í vandræðum.“

Lögmenn eru að undirbúa málsókn

DV náði sambandi við starfsmann hjá Moomin Characters í morgun sem sagði að málið væri í athugun innan fyrirtækisins. Skriflegt svar barst síðan frá forstjóra Moomin Characters, Roleff Kråkström, við hádegislok. Þar eru tekin af öll tvímæli um skoðun rétthafans á málinu:

„Þetta er því miður blygðunarlaust höfundarréttarbrot gagnvart Moomin Characters. Lögmenn okkar eru í þessum skrifuðu orðum að undirbúa lögsókn á hendur hinum brotlegu.“

Ljóst virðist því vera að rétthafi Múmínálfanna mun lögsækja Skógræktarfélag Eyfirðinga vegna Múmínlundarins í Kjarnaskógi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu
Fréttir
Í gær

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum