fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. júní 2025 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mál írska fiðluleikarans Sean Bradley, sem hvarf sporlaust frá Íslandi árið 2018, hefur undanfarið verið til umfjöllunar í þættinum Þetta helst með Þóru Tómasdóttur. Málið er enn óupplýst og þykir afar dularfullt, en Sean hafði verið búsettur á Íslandi í tæp 40 ár þegar hann hvarf, var vinamargur og hafði átt glæsilegan feril sem fiðluleikari þar sem hann spilaði meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Vinkona með skuggalega fortíð

Í þættinum að þessu sinni er rakið að lögreglu hafi grunað að eitt vitnanna í málinu hafi haft áhuga á að komast yfir fjármuni fiðluleikarans, sem voru víst þó nokkrir enda var hann vel stæður og hafði auk þess fengið arf frá nánum fjölskyldumeðlimum. Þetta vitni er kona sem leigði íbúð af Sean og mun hafa flogið með honum frá Íslandi í júní 2018. Konan skilaði sér aftur heim nokkru síðar, en ekki Sean. Raunar hefur lögreglan áður tekið fram að ekki sé einu sinni víst að Sean hafi farið frá Íslandi.

Konan er ekki nafngreind í þættinum en af fyrri fréttum um málið og af samhengi umfjöllunarinnar er augljóst um hvern ræðir. Hún heitir Emma Caroline Fernandez, íslenskur ríkisborgari af indverskum uppruna. Hún er menntaður læknir og hafði starfað sem slíkur hér á landi til ársins 2015, en þá greindi Stundin frá því að Emma hefði verið ákærð í Ungverjalandi fyrir stórfellda líkamsárás sem hafði átt sér stað nokkrum árum áður þegar Emma var þar að ljúka læknanámi.

Emma bauð þolanda árásarinnar, sem einnig var læknanemi, í mat þar sem hún byrlaði henni svefnlyfjum og réðst síðar á hana með hamri. Emma hlaut árið 2016 skilorðsbundinn dóm fyrir árásina. Ekki var Emma sátt með umfjöllun Stundarinnar um ákæruna og stefndi hún blaðamanni og útefanda fyrir dóm vegna meiðyrða. Stundin hafði þó betur í málinu.

Hún og Sean höfðu þekkst í áratugi, en vinir fiðluleikarans telja að hann hafi um hríð verið ástfanginn af henni en síðar farið að óttast hana. Emma leigði íbúð sem Sean átti á Selfossi og hann hafði orðið eins konar fjárhagslegur bakhjarl hennar. Vinir Sean höfðu þungar áhyggjur af þessum vinskap.

Þetta helst hefur það eftir heimildarmönnum að Emma hafi sýnt mikinn skapofsa, en bróðir hennar sakar hana um að hafa beitt móður þeirra ofbeldi og tók fram að hún sé ekki í miklum samskiptum við fjölskyldu sína í dag. Emma heldur nú til erlendis og segist ekki hafa nokkurn áhuga á að ræða við fjölmiðla. Hún hefur þó haldið því fram að hún hafi átt í samskiptum við Sean til ársins 2021.

Undarleg samskipti og úttektir

Nokkrir vinir Sean höfðu eins átt rafræn samskipti við fiðluleikarann eftir að hann hvarf en þessi samskipti voru þó undarleg. Enskukunnátta hans var skyndilega verri og hann talaði ekki eins og hann var vanur. Þá grunar því að einhver annar hafi komist yfir stafræna miðla hans til að láta líta út fyrir að hann væri á lífi. Síðustu færslur á reikningum Sean voru úttektir í hraðbanka á Malaga árið 2019. Á þeim tíma var Emma í Malaga.

Sean átti fasteignir á Íslandi, eina í Hafnarfirði og eina á Selfossi. Báðar eignir voru seldar nauðungarsölu eftir að Sean hvarf, enda hættu þá að berast greiðslur vegna áhvílandi lána. Fasteignasali sem Þetta helst ræddi við segir að Emma hafi viljað eignast eignina á Selfossi. Hún hafi verið með eignina á leigu samkvæmt leigusamningi sem var gerður eftir að Sean hvarf. Samkvæmt þessum samningi hafði Emma forkaupsrétt að eigninni, þurfti aðeins að greiða lága leigu og þurfti ekki að leggja fram tryggingu.

Vinir Sean telja að lögregla þurfi aftur að opna rannsóknina í málinu og komast að því hvað varð um fiðluleikarann.

Lögreglan ræddi við Fréttablaðið vegna málsins árið 2020 en þá kom fram að Sean hafi átt bókað flug til Spánar og flugsætið var notað en lögregla gæti ekki staðfest að Sean hafi í raun notað sætið. Ekkert hafði svo sést til fiðluleikarans á Spáni. Vinir Sean sögðu þetta allt mjög skrýtið enda var hann mjög flughræddur og átti auk þess von á syni sínum í heimsókn daginn eftir að flugtak. Vinir hans fengu skilaboð frá Sean eftir meinta ferðalagið þar sem hann sagðist vera kominn í búdda-klaustur á Spáni að stunda íhugun, en eins og áður hefur komið fram þá grunar vinunum að skilaboðin hafi ekki komið frá Sean sjálfum heldur frá einhverjum sem var að villa á sér heimildir.

Lögregla skoðaði íbúði Sean á Selfossi, sem Emma bjó í, en fann engin merki um að nokkuð saknæmt hefði átt sér stað.

Sonur Sean höfðaði mál fyrir Héraðsdómi Suðurlands í lok árs 2023 til að fá föður sinn úrskurðaðan látinn.

Sjá einnig: Vendingar í dularfullu hvarfi fyrrum fiðluleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands – Höfðar mál til að fá föður sinn úrskurðaðan látinn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt