fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 27. júní 2025 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þarna er dallur undir sprautanálar sem hefur verið settur upp í fimm metra fjarlægð frá barnaleikvelli. Hér eru óvitar og litlir krakkar að leika sér og ekki ólíklegt að þau geti séð þennan dall, sem er merktur Geislavörnum ríkisins, og tekið hann eða opnað hann. Nálægðin er rosalega óeðlileg, þetta er alvarlegt,“ segir áhyggjufullur faðir níu ára stúlku.

Barnið dvelst hjá móður sinni aðra hvora viku og hina vikuna heima hjá föðurnum. Móðirin býr í leiguhúsnæði í blokk við Írabakka sem er í eigu Félagsbústaða. Þar hafa sumir íbúar valdið nágrönnum sínum gífurlegu ónæði.

„Hér er óregla en hér eru líka barnafjölskyldur og rólegheitafólk með allt sitt á hreinu. Mesta ónæðið er af einum einstaklingi og liðinu sem þeim aðila fylgir. Það er mikið ónæði og hávaði, en líka ógnanir og rúðubrot. Það hefur verið margkvartað yfir ástandinu til Félagsbústaða sem gera ekkert í því og eru hættir að svara fyrirspurnum um þetta. Félagsbústaðir ættu að geta tekið á þessu með einhverjum ráðum.“

Fréttir hafa verið birtar á undanförnum mánuðum um útburð leigjenda úr íbúðum Félagsbústaða sem ekki hafa staðið í skilum með leigu. Faðirinn veltir því hins vegar fyrir sér hvort leigjendur Félagsbústaða geti hagað sér að vild svo lengi sem þeir greiða leigu.

Hann undrast mjög að sprautudallurinn hafi verið settur upp. „Þetta er prófessjónal atriði til að ganga frá sprautunálum. Ég veit að teymi frá Reykjavíkurborg hefur verið að vinna með þennan einstakling, sem er mjög veikur, það verður bara að segjast eins og er, en ég trúi því varla að þetta hafi verið sett upp frá þeim. Það væri rosalegt,“ segir maðurinn sem telur að skaðaminnkunarúrræði eigi ekki heima innan um bústaði fjölskyldufólks.

Hann kallar eftir því að Félagsbústaðir bregðist betur við kvörtunum undan ófriðsömum leigjendum í blokkinni við Írabakka.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Telur að aðeins tvö lönd í heiminum séu örugg ef kjarnorkustyrjöld brýst út

Telur að aðeins tvö lönd í heiminum séu örugg ef kjarnorkustyrjöld brýst út
Fréttir
Í gær

Skiptar skoðanir um hús eftir verðlaunaarkitekt – „Ég finn brunalykt við að horfa á það“

Skiptar skoðanir um hús eftir verðlaunaarkitekt – „Ég finn brunalykt við að horfa á það“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússneskur ráðherra segir að Rússland eigi í miklum efnahagsvanda

Rússneskur ráðherra segir að Rússland eigi í miklum efnahagsvanda