Landsréttur hefur snúið við dómi gegn Moggabloggaranum Páli Vilhjálmssyni í máli sem blaðamaðurinn Aðalsteinn Kjartansson höfðaði.
Þann 24. apríl 2024 féll dómur í héraði í málinu en þar voru átta ummæli Páls, sem hann viðhafði á bloggsíðu sinni á Morgunblaðinu, dæmd dauð og ómerk. Snerust þau öll um fullyrðingar Páls að Aðalsteinn hefði haft aðkomu, beina og óbeina, að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans en það mál, sem tengist svonefndri „skæruliðadeild“ Samherja hefur verið ítrekað í fréttum hin síðari ár og varla farið framhjá nokkrum manni.
Héraðsdómari úrskurðaði að ummælin hefðu farið yfir strikið og var Páli gert að fjarlægja þau, ella greiða dagsektir, sem og að birta færslu um niðurstöðu dómsins. Þá var Páli gert að greiða Aðalsteini 400 þúsund krónur í bætur með dráttarvöxtum, auk 1,4 milljóna króna í málskostnað.
Hér má lesa ummælin sem dómari í héraði taldi fara yfir strikið
Eins og áður sagði komumst þrír Landsréttardómarar að annarri niðurstöðu. Segir í dómorði að þótt ummæli Páls í garð Aðalsteins hefðu vissulega verið beinskeytt og óvægin þá yrði að líta til þess að Aðalsteinn hefði haft stöðu sakbornings í áðurnefndu símamáli og hafi sætt, þegar ummælin féllu, opinberri rannsókn vegna málsins.
„Þá hefði Páll verið þátttakandi í almennri umræðu um atvik sem hafði samfélagslega þýðingu sem erindi ætti við almenning og hefði af þeim sökum notið rúms tjáningarfrelsis á meðan Aðalsteinn mætti sem blaðamaður og opinber persóna gera ráð fyrir að þurfa að þola hvassa og óvægina gagnrýni í kjölfar eigin skrifa,“ eins og segir í niðurstöðu Landsréttir.
Páll hafi mátt verið í góðri trú um að nægjanlegt tilefni hefði verið til umælanna og að þau hefðu, þegar litið væri til umræðunnar sem málið vakti, „ekki gengið svo langt að nauðsyn bæti til þess í lýðræðilsegur samfélagi, þar sem tjáningarfrelsi er í hávegum haft, að ómerkja þau.“
Skrif Páls sem um væri deilt hefðu því rúmast innan rétt hans til tjáningafrelsis samkvæmt stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu.